Körfubolti

„Ég hef ekki átt neinar samræður við ÍR“

Atli Arason skrifar
Ragnar Örn Bragason
Ragnar Örn Bragason Vísir/Bára Dröfn

Ragnar Þór Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, segir ekkert til í þeim sögusögnum að hann sé á leiðinni aftur í Breiðholtið.

„Það eru kjaftasögur um einhverjar skiptingar hjá Þór Þorlákshöfn. Að Raggi Braga sé að fara aftur í ÍR og að Þór ætli að fylla í hans pláss með erlendum leikmanni,“ sagði Teitur Örlygsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, í þættinum síðastliðinn föstudag.

Það hefur ringt inn tilkynningum á símanum hans Ragnars frá því að Teitur deildi þessari leigubílasögu í Körfuboltakvöldi.

„Sjálfur heyrði ég þessa sögusögn fyrst í hádeginu á föstudaginn og hún kom úr ótrúlegustu átt. Svo eftir leik gegn Stjörnunni þá kom þetta fram í körfuboltakvöldi og þá fékk ég fullt af spurningum á Facebook og annars staðar,“ sagði Ragnar í viðtali við Vísi í dag.

Ragnar segir þó að ekkert sé til í þessari kjaftasögu. Hann er ekki á leiðinni aftur til ÍR en félagaskiptaglugginn lokar í dag.

„Nei, það er ekki staðan eins og hún er í dag allavegana. Ég hef í raun bara heyrt þessar sögusagnir í kringum mig eins og aðrir. Ég er búinn að spyrja Lalla af því hvort hann sé að selja mig og hann neitar því. Ég er ekki að fara neitt nema hann sé að ljúga af mér, það er eini möguleikinn.“

Eins greint var frá fyrr í dag þá samdi Þór við Kyle Johnson en Johnson mun þó ekki leika með liðinu gegn Vestra í kvöld.

„Hann ferðaðist ekki með liðinu í gær en verður sennilega klár fyrir næsta leik sem er á móti ÍR. Það verður sennilega skemmtilegt að mæta þangað eftir allt þetta,“ sagði Rangar og hló.

Eftir að Þór tilkynnti komu Kyle Johnson, þá reyndist helmingur af kjaftasögu Teits vera sönn og gaf því sögunni um brottför Ragnars byr undir báða vængi. Ragnar hefur ákveðnar kenningar yfir því hvernig hans nafn dregst inn í söguna.

„Það er alltaf hægt að reyna að leggja einn og einn saman og fá þetta út en í þessari tilteknu jöfnu þá vantar samt annan ásinn þannig þetta dæmi gengur upp. Þetta er einhver uppspuni út frá mínum bakgrunni sem einhver sagði einhverjum og þessi saga fór greinilega þetta langt.  Ég hef ekki átt neinar samræður við ÍR,“ sagði Ragnar Þór Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×