Innherji

Daði kveður Fossa til að stýra nýjum sjóði sem fjárfestir í rafmyntum

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Daði Kristjánsson (til hægri) kveður Fossa markaði þar sem skarð hans í teymi markaðsviðskipta fyllir Arnar Geir Sæmundsson.
Daði Kristjánsson (til hægri) kveður Fossa markaði þar sem skarð hans í teymi markaðsviðskipta fyllir Arnar Geir Sæmundsson. Aðsend mynd

Daði Kristjánsson hefur látið af störfum hjá Fossum mörkuðum. Hann tekur við sem framkvæmdastjóri hjá nýstofnuðu félagi, Viska Digital Assets ehf., sem vinnur að því að koma á fót sérhæfðum fagfjárfestasjóði með áherslu á rafmyntir og bálkakeðjutækni.

„Ég hef varið stórum hluta af frítíma mínum síðustu ár í að kynna mér bálkakeðjutækni og fjárfest í rafmyntum. Þetta er ört vaxandi eignaflokkur þar sem ég sé mikil tækifæri á næstu árum,“ er haft eftir Daða, sem réð sig til Fossa árið 2018 og hefur starfað við verðbréfamiðlun í 15 ár, í tilkynningu um starfslokin. 

Við starfslok Daða kemur Arnar Geir Sæmundsson yfir í teymi markaðsviðskipta hjá Fossum mörkuðum en hann er nú hluti af teymi fyrirtækjaráðgjafar Fossa. Áður en hann kom til starfa hjá Fossum fyrir tæpu ári síðan starfaði hann á fjárfestingasviði TM hf. og sem forstöðumaður fjárstýringar hjá Lykli fjármögnun hf. Þar áður starfaði Arnar Geir í markaðsviðskiptum Arctica Finance hf. og H.F. Verðbréfum hf. 

Arnar Geir er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavik og Masters in Finance gráðu frá London Business School, auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×