Innlent

Vara­borgar­full­trúi hættir vegna á­sakana um kyn­ferðis­of­beldi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Daníel Örn Arnarsson er hættur sem varaborgarfulltrúi vegna ásakana um kynferðisofbeldi.
Daníel Örn Arnarsson er hættur sem varaborgarfulltrúi vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Reykjavíkurborg

Daníel Örn Arnarsson, varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hefur sagt sig frá störfum fyrir borgarstjórn vegna ásakana sem komið hafa fram um kynferðisofbeldi. 

Daníel Örn greinir sjálfur frá þessu í innleggi á Facebook. Þar segir hann að hann hafi ákveðið að segja sig frá stjórnmálaþátttöku og frá félagslegum störfum vegna ásakananna. Hann ætlar að draga sig úr borgarstjórn þar sem hann hefur setið sem varaborgarfulltrúi.

Daníel Örn var einnig í framboði til stjórnar Eflingar og hefur hætt við það framboð „af virðingu fyrir baráttu verkafólks fyrir bættum kjörum og aðstæðum.“

Sósíalistaflokkurinn fékk einn borgarfulltrúa kjörinn í borgarstjórnarkosningunum árið 2018. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×