Matur

Eldað af ást: Tacosalat úr örfáum hráefnum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kristín Björk sýnir tacosalat í nýasta þættinum af Eldað af ást.
Kristín Björk sýnir tacosalat í nýasta þættinum af Eldað af ást. Eldað af ást

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk. Fjórða máltíðin sem hún sýnir er tacosalat.

„Tacosalat eða pizza? Nánast undantekningalaust er tacosalat eða pizza í matinn hjá mér á föstudögum, hvort verður fyrir valinu hefur eiginlega allt með tíma að gera. Ef ég hef tímann fyrir mér þá geri ég pizzu frá grunni, ef ég hef skemmri tíma til að elda þá geri ég þetta geggjaða tacosalat. Tacosalatið er auðvelt að gera, örfá hráefni og það eina sem maður þarf að elda er nautahakkið. Njótið vel,“ segir Kristín Björk um salatið. 

Kristín Björk heldur úti skemmtilegri Instagram síðu en þættirnir hennar munu birtast vikulega hér á Vísi. Hægt er að horfa á fyrstu þættina HÉR.

Þáttinn má sjá í spilaranum en uppskriftina má svo finna neðar í fréttinni.

Klippa: Eldað af ást - Tacosalat

Tacosalat

  • 1 bakki ungnautahakk
  • 1 bréf taco seasoning mix
  • Kínakál
  • Agúrka
  • Tómatar
  • Rifinn mozarella ostur
  • 1/2 poki osta nachos

Sósan:

  • 1 dós 10% sýrður rjómi
  • Thai Sweet Chilli sósa, jafn mikið og sýrði rjóminn

Guacamole:

  • 3 Avocadó
  • 2 tómatar
  • 1 hvítlaukur
  • safi úr 1/2 lime
  • Rauður chilli
  • Kóriander

Gott að bera fram með salsa sósu


Tengdar fréttir

Ástríðukokkur sem á margt eftir ólært

„Eldað af ást eru örþættir sem eru ætlaðir öllum matgæðingum,“ segir Kristín Björk Þorvaldsdóttir þáttastjórnandi Eldað af ást sem fóru af stað hér á Lífinu á Vísi fyrir jólin. Kristín Björk er matgæðingur, matarbloggari og flugfreyja.

Eldað af ást: Kálfakjöt með heimagerðu pestói

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk. Þriðja máltíðin sem hún sýnir er kálfakjöt með heimagerðu pestói og meðlæti.

Eldað af ást: Matmikið andasalat sem er létt í maga

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk og önnur uppskriftin sem hún sýnir er andasalat sem er fullkomið eftir þungar hátíðarmáltíðir síðustu daga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×