Körfubolti

Topp­lið Austur­deildarinnar án lykilmanna og töpuðu bæði

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Darius Garland var frábær í sigri Cleveland Cavaliers á Brooklyn Nets í kvöld.
Darius Garland var frábær í sigri Cleveland Cavaliers á Brooklyn Nets í kvöld. EFE/MICHAEL REYNOLDS

Alls fóru sex leikir NBA-deildarinnar fram á skikkanlegum tíma fyrir okkur Íslendinga nú í kvöld. Topplið Austurdeildarinnar – Brooklyn Nets og Chicago Bulls – töpuðu bæði.

Alls fóru sex leikir NBA-deildarinnar fram á skikkanlegum tíma fyrir okkur Íslendinga nú í kvöld. Topplið Austurdeildarinnar – Brooklyn Nets og Chicago Bulls – töpuðu bæði.

Brooklyn Nets var án Kevin Durant er liðið mætti Cleveland Cavaliers í kvöld. Durant meiddist í síðasta leik liðsins og er enn óljóst hversu lengi hann verður frá. Í hans stað kom hinn óbólusetti Kyrie Irving inn í liðið þar sem Nets voru á útivelli.

Irving og James Harden gerðu hvað þeir gátu gegn einkar spræku Cavaliers-liði sem hefur komið nær öllum á óvart í vetur en allt kom fyrir ekki. Cavs með frábæran sjö stiga sigur eftir að sóknarleikur Nets hrundi í fjórða leikhluta, lokatölur 114-107.

Harden skilaði 22 stig, 10 stoðsendingum og 7 fráköstum á þeim 40 mínútum sem hann spilaði. Irving skilaði 27 stigum, 9 stoðsendingum og 7 fráköstum á þeim 38 mínútum sem hann spilaði.

Segja má að liðsheildin hafi unnið þennan leik en Darius Garland var eini leikmaður Cleveland með meira en 15 stig. Hann skoraði 22 stig og gaf 12 stoðsendingar. Alls voru þó fimm leikmenn til viðbótar sem skoruðu 12 stig eða meira í kvöld.

Skógarbirnirnir frá Memphis unnu sannfærandi 13 stiga sigur á Nautunum frá Chicago, 119-106. Eftir jafnan fyrsta leikhluta settu Memphis-menn í fimmta gír og voru 13 stigum yfir í hálfleik. Sá munur var kominn upp í 20 stig fyrir síðasta fjórðung en þar tókst Nautunum að klóra í bakkann án þess þó að segja raunverulegan möguleika á sigri.

Ja Morant og Desmond Bane skoruðu báðir 25 stig í liði Grizzles. DeMar DeRozan skoraði 24 stig í liði Bulls sem var án Lonzo Ball, Zach Lavine og Alex Caruso í kvöld.

Miles Bridgers skoraði 38 stig og tók 12 fráköst í tíu stiga sigri Charlotte Hornets á New York Knicks, lokatölur 97-87.

Montrezl Harrell skoraði 18 stig og Kyle Kuzma skoraði 15 ásamt því að taka 16 fráköst er Washington Wizards kafsigldi Philadelphai 76ers, lokatölur 117-98. Joel Embiid var með 32 stig í liði 76ers.

Nicola Batum skoraði 32 stig og Reggie Jackson gerði 26 er Los Angeles Clippers vann Indiana Pacers 139-133. Caris LaVert skoraði 26 stig í liði Pacers.

Jayson Tatum skoraði 27 stig og Dennis Schröder bætti við 23 til viðbótar er Boston Celtics vann New Orleans Pelicans 104-92.


NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×