Matur

Uppskrift að Barbie kökunni úr Blindum bakstri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Barbie kaka Evu Laufeyjar Kjaran þáttastjórnanda í Blindum bakstri.
Barbie kaka Evu Laufeyjar Kjaran þáttastjórnanda í Blindum bakstri. Stöð 2/Blindur bakstur

Í þætti vikunnar af Blindum bakstri lét Eva Laufey Kjaran keppendur baka köku. Það eer samt engin venjuleg kaka sem Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal þurftu að baka, heldur Barbie kaka. Útkoman getur verið alveg ótrúlega flott, ef allt gengur upp. 

Barbie kakan í þættinum er gerð í fimm formum, þremur í stærðinni 20 sentímetrar og tvö í stærðinni 18 sentímetrar. Uppskriftina má finna hér fyrir neðan. 

Botnar

  • 800g sykur
  • 440 g hveiti
  • 240 g kakó
  • 4 tsk matarsódi
  • 2 tsk lyftiduft
  • 2 tsk salt
  • 6 egg
  • 5 dl súrmjólk
  • 5 dl heitt soðið vatn
  • 4 dl ljós olía
  • 2 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur
  2. Sigtið þurrefnin saman í skál, sykur, hveiti, kakó, matarsódi, lyftiduft og salt.
  3. Bætið eggjum , súrmjólk, soðnu vatni, olíu og vanillu og þeytið áfram.
  4. Skiptið deiginu á milli forma og bakið við 180°C í 25 mínútur.
  5. Kælið botnanna mjög vel.

Súkkulaðikrem

  • 700 g flórsykur
  • 700 g smjör
  • 1 tsk vanilludropar
  • 100 g rjómasúkkulaðidropar

Aðferð:

  1. Þeytið saman smjöri og bætið flórsykrinum smám saman.
  2. Bætið vanilludropum saman við.
  3. Bræðið súkkulaði og bætið saman við.
  4. Sprautið kreminu á milli botnanna og þekjið kökuna með kreminu.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af kökum Evu Laufeyjar, Herra Hnetusmjörs og Birgittu Haukdal. 

Kökurnar úr Blindum bakstri.Blindur bakstur

Tengdar fréttir

Sindri og Jói í basli í bakstri

Í gærkvöldi fór í loftið jólaútgáfa af Blindum bakstri þar sem Eva Laufey fær til sín skemmtilega gesti næstu tvö sunnudagskvöld.

Svona gerir þú piparkökuhúsið úr Blindum bakstri

Blindur bakstur fór af stað á sunnudag og fyrstu tveir þættirnir verða sérstakir jólaþættir. Í fyrri þættinum var bakað piparkökuhús og á næsta sunnudag kemur svo í ljós hvað keppendur þurfa að baka í seinni þættinum. 

Marengstoppar með þristabitum – einfaldlega lostæti!

Eva Laufey Kjaran matgæðingur og fjölmiðlakona gaf út nýja bók á dögunum, Bakað með Evu. Í næstu viku fer hún svo aftur af stað með nýja þáttaröð af matreiðsluþáttunum Blindur bakstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×