Real Madrid tapaði fyrir Getafe Arnar Geir Halldórsson skrifar 2. janúar 2022 14:48 Hazard komst hvorki lönd né strönd frekar en aðrir sóknarmenn Real Madrid í dag. vísir/Getty Topplið spænsku úrvalsdeildarinnar byrjar nýja árið ekki með neinum glæsibrag en Real Madrid heimsótti Getafe í fyrsta leik ársins í La Liga í dag. Skemmst er frá því að segja að stórstjörnur Real Madrid virtust enn vera í jólafríi því ekki tókst þeim að skora í dag þrátt fyrir að vera meira og minna með boltann innan síns liðs. Tyrkinn stóri og stæðilegi, Enes Unal, kom Getafe í forystu snemma leiks og reyndist það sigurmark leiksins því ekkert meira var skorað. Real Madrid missti því af tækifæri til að koma forskoti sínu upp í ellefu stig en Sevilla á tvo leiki til góða í öðru sæti deildarinnar. Getafe hins vegar lyfti sér hins vegar upp í 16.sæti deildarinnar og fjarlægðist aðeins fallsvæðið en þetta var fjórði sigur liðsins á tímabilinu. Spænski boltinn
Knattspyrnusambandið lét Couto dekkja hárið: „Þau sögðu að bleiki liturinn væri heimskulegur“ Fótbolti
Undanúrslit Mjólkurbikarsins: Arnar Grétarsson fer á fornar slóðir og bikarmeistararnir fá Stjörnuna
Uppgjörið, myndir og viðtöl: Víkingur - Fylkir 3-1 | Víkingur hreinlega kann ekki að detta úr bikarnum
Knattspyrnusambandið lét Couto dekkja hárið: „Þau sögðu að bleiki liturinn væri heimskulegur“ Fótbolti