Innlent

Bjóða fólki að losa sig við jóla­ruslið allan sólar­hringinn

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Jólapappírinn hrúgast upp á mörgum heimilum eftir aðfangadag og oft verið erfitt að losa sig við hann svo sæmilegt meigi heita.
Jólapappírinn hrúgast upp á mörgum heimilum eftir aðfangadag og oft verið erfitt að losa sig við hann svo sæmilegt meigi heita. Aðsend

Í tilefni þess jólagjafaflóðs sem flæðir yfir landann á aðfangadagskvöld, með tilheyrandi papparusli og öðru slíku, hefur Orkan ákveðið að bjóða fólki að skila pappa, plastumbúðum og jólapappír til endurvinnslu á fjórum stöðvum Orkunnar á höfuðborgarsvæðinu nú milli jóla og nýárs.

Í tilkynningu frá Orkunni kemur fram að hægt verði að skila ruslinu við Orkustöðvar á Suðurströnd á Seltjarnarnesi, við Kleppsveg og Gylfaflöt í Reykjavík og á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Gámarnir eru aðgengilegir allan sólarhringinn en í þá má setja pappa, plastumbúðir og jólapappír. Hægt verður að nota þá til 29. desember.

„Við viljum samt vekja athygli á því að oft er hægt að nýta jólapappír, pakkabönd og slaufur aftur næstu jól og er það auðvitað besta endurvinnslan,“ er haft eftir Jóhönnu Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Orkunnar.

„Við þekkjum öll hvernig stofan okkar lítur út eftir jólin. Við viljum einfalda líf fólks og trúum á að þetta séu þægindi framtíðarinnar. Með þessum möguleika getur fólk hent pappa, plasti og jólapappír með góðri samvisku hvenær sem hentar, jafnvel á náttfötunum á jóladag. Terra sér svo um að flokka og endurvinna það sem safnast,“ er haft eftir Jóhönnu.

Um tilraunaverkefni er að ræða og möguleiki að fjölga staðsetningum fyrir næstu jól ef vel gengur í ár.

„Við prófuðum þetta í sumar með garðaúrgang við góðar undirtektir og finnum fyrir mikilli ánægju meðal viðskiptavina okkar með þetta framtak. Garðaúrgangurinn er síðan jarðgerður og munum við bjóða moltu til viðskiptavina á næsta ári.“

Jóhanna Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Orkunnar, og Gunnar Friðriksson, viðskiptastjóri hjá Terra, hjá endurvinnslugámi við Orkuna á Gylfaflöt í Grafarvogi.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×