Liverpool áfram eftir dramatískt jöfnunarmark og vítakeppni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jota kom Liverpool til bjargar
Jota kom Liverpool til bjargar vísir/Getty

Liverpool er komið í undanúrslit enska deildabikarsins eftir sigur á Leicester í 8-liða úrslitum keppninnar á Anfield í kvöld.

Bæði lið léku án margra lykilmanna enda mikið álag á liðunum yfir jólahátíðina eins og alltaf í enska boltanum.

Jamie Vardy hóf leik í fremstu víglínu Leicester og hann var svo sannarlega klár í slaginn því hann kom gestunum í tveggja marka forystu á fyrstu þrettán mínútum leiksins.

Alex Oxlade-Chamberlain minnkaði muninn fyrir Liverpool á 19.mínútu en James Maddison sá til þess að Leicester færi með tveggja marka forystu í leikhléið þegar hann skoraði gott mark á 33.mínútu.

Diogo Jota og Ibrahima Konate komu inn af bekknum hjá Liverpool í leikhléi og sá fyrrnefndi náði að minnka muninn í 2-3 á 69.mínútu.

Heimamenn gáfust ekki upp og í uppbótartíma venjulegs leiktíma jafnaði Takumi Minamino  metin.

Leikurinn var því leiddur til lykta með vítaspyrnukeppni og þar hafði Liverpool betur í bráðabana.

Liverpool því í pottinum með Arsenal, Chelsea og Tottenham þegar dregið verður í undanúrslit deildabikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira