Jól

Taktu þátt í valinu á best skreytta húsinu á Íslandi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hvaða hús fær titilinn best skreytta hús landsins þessi jólin?
Hvaða hús fær titilinn best skreytta hús landsins þessi jólin? Vísir

Íslendingar eru duglegir að skreyta hús sín og lýsa upp skammdegið vel. Vísir setti því af stað sérstaka jólaskreytingarkeppni.

Mögulegt var að tilnefna eigið hús eða eitthvað hús annarra sem þóttu vel skreytt þessi jólin. Myndirnar streymdu inn í keppnina frá öllum landshlutum. 

Nú er komið að lesendum Vísis að velja best skreytta hús landsins. Dómnefnd fór yfir allar myndirnar sem sendar voru inn í keppnina. Hér fyrir neðan könnunina má sjá frekari upplýsingar um þau fimm hús sem þóttu skara fram úr. 

Uppfært mánudaginn 19. desember:

Kosningunni er nú lokið og sigurvegarinn verður tilkynntur hér á Vísi. 


Garpur Elísabetarson fór og myndaði efstu húsin seint í gær og nýfallinn jólasnjórinn setur skemmtilegan svip á myndirnar.

Lesendur velja sigurvegara jólaskreytingakeppninnar og úrslitin verða tilkynnt eftir helgi. Í vinning eru 100.000 krónur hjá Húsasmiðjunni.

Húsin sem komust í topp fimm í keppninni.Vísir

A) Jólahúsið á Völlunum, Furuvellir

„Jólahúsið á Furuvöllum, stendur einnig í svakalegri jólagötu þar sem er mikið skreytt og gaman að taka göngutúr í gegnum. Garðurinn er ótrúlega mikið skreyttur og öll tré sem standa næst hafa eignast sitt eigið líf með sinni ljósa seríu. Mjög mikið af litlum úthugsuðum smátriðum þegar skoðað er í kring, en skreytti jólabíllinn í innkeyrslunni er sérstaklega góð viðbót, þar sem jólasveinninn og Grinch sita saman frammí.“

Jólahúsið á VöllunumVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið á VöllunumVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið á Völlunum í HafnarfirðiVísir/Garpur I. Elísabetarson

B) Jólahúsið í Kópavogi, Múlalind

„Jólahúsið í Múlalind, stendur í svakalegri jólagötu þar sem virðist vera skemmtileg keppni á milli nágranna í hver skreytir mest og best. Húsið er fallega skreytt, og úthugsaðar skreytingar, bæði ljós og styttur allan hringinn í kring.“

Jólahúsið í KópavogiVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið í KópavogiVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið í Kópavogi.Vísir/Garpur I. Elísabetarson

C) Jólahúsið á Selfossi, Austurvegi.

„Húsið er í anda þess sem maður myndi sjá í Home Alone myndunum og skreytt eftir því. Mjög klassískt útlit á húsi og skreytingum. Mikið af skreytingum en ekki of mikið og búið að úthugsa hverja peru.“

Jólahúsið á SelfossiVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið SelfossiVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið á Selfossi.Vísir/Garpur I. Elísabetarson

D) Jólahúsið í Hafnafirði, Hlíðarbraut

„Jólahúsið á Hlíðarbraut er alls ekki mest skreytta húsið, en það er mjög stílhreint og fallegar skreytingar. En þó það sé ekki mest skreytta húsið, þá er mikið lagt í skreytingarnar, eins og td. Tréð sem stendur fyrir aftan húsið sem rammar inn ásýndina.“

Jólahúsið í HafnarfirðiVísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið í Hafnarfirði.Vísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið í Hafnarfirði.Vísir/Garpur I. Elísabetarson

E) Jólahúsið í Hveragerði, Réttarheiði

„Jólahúsið á Réttarheiðinni í Hveragerði, er skreytt allan hringinn, í litríkum jólaseríum ásamt miklu aukaskrauti þár á milli, td. Upplýstir jólasveinar sem standa vörð allan hringinn. Húsið er brúnt og því lítur það út eins og piparkökuhús svona skreytt úr fjarska.“

Jólahúsið í Hveragerði.Vísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið í Hveragerði.Vísir/Garpur I. Elísabetarson
Jólahúsið HveragerðiAðsent

Tengdar fréttir

Leit hafin að best skreytta húsinu á Íslandi

Íslendingar eru duglegir að skreyta hús sín og lýsa upp skammdegið vel. Nú styttist í jólin og Vísir hefur sett af stað sérstaka jólaskreytingarkeppni. 








×