Þægilegt hjá Man City í Newcastle

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Þægilegur dagur á skrifstofunni.
Þægilegur dagur á skrifstofunni. vísir/Getty

Englandsmeistarar Manchester City áttu ekki í nokkrum vandræðum með Newcastle United í uppgjöri ríkustu fótboltaliða heims í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Yfirburðir Man City voru algjörir nær allan leikinn en portúgölsku varnarmennirnir Ruben Dias og Joao Cancelo sáu til þess að Man City hefði tveggja marka forystu í leikhléi.

Eftir klukkutíma leik kom Riyad Mahrez sér á markalistann þegar hann afgreiddi fyrirgjöf Oleksandr Zinchenko snyrtilega í netið.

Undir lok leiks rak Raheem Sterling síðasta naglann í kistu lánlausra Newcastle manna þegar hann skoraði eftir góðan undirbúning Gabriel Jesus. Lokatölur 0-4 fyrir Man City.

Þar með er það ljóst að lærisveinar Pep Guardiola munu tróna á toppi deildarinnar yfir jólahátíðina en þeir hafa nú fjögurra stiga forskot á Liverpool sem mætir Tottenham innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira