Ungmenni réðust á strætóbílstjóra Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. desember 2021 06:21 Lögregla hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til rétt fyrir klukkan 21 vegna slagsmála í strætó en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni réðust ungmenni á bílstjóra bifreiðarinnar.
Foreldrar og barnavernd voru kölluð til en nánari upplýsingar er ekki að finna í tilkynningu. Lögregla sinnti annars mörgum og fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars þrisvar kölluð til vegna ónæðis. Í eitt skiptið var um að ræða ölvaðan mann í sameign fjölbýlishúss, sem var læstur úti. Tókst lögreglu að aðstoða hann við að komast inn. Í miðborginni var maður handtekinn rétt fyrir klukkan 18 fyrir vörslu fíkniefna og blygðunarsemisbrot. Skömmu síðar var annar handtekinn vegna ógnandi tilburða en sá var einnig ölvaður. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ágreinings í verslun og vegna farþega leigubifreiðar, sem neitaði að greiða fargjaldið. Í umdæminu sem nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ var tilkynnt um menn í bifreið fyrir utan veitingastað. Báðir voru ölvaðir og lyklar teknir af þeim til að koma í veg fyrir akstur. Þá var maður handtekinn vegna mögulegra brota á vopnalögum en maðurinn er jafnframt grunaður um hótanir og líkamsárás. Málið er í rannsókn.
Lögreglumál Strætó Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjá meira