Jól

Jólalag dagsins: Geir Ólafsson flytur Santa Claus Is Coming To Town

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Okkar eini sanni Geir Ólafs á jólalag dagsins á Vísi.
Okkar eini sanni Geir Ólafs á jólalag dagsins á Vísi. Stöð 2 Sport

Nú er biðin svo sannarlega að styttast. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Í dag 19. desember bjóðum við upp á lagið Santa Claus Is Coming To Town. Lagið hefur verið flutt í gegnum árin af listamönnum eins og Bing Crosby, Michael Bublé, Mariuh Carey, Neil Diamond, Bruce Springsteen, Frank Sinatra, Jackson 5, Justin Bieber og svona mætti lengi telja.

Okkar eigin Geir Ólafsson flutti jólalagið Santa Claus Is Coming To Town í jólaþætti Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport árið 2017. 


Tengdar fréttir








×