Innlent

Björn Zoëga til liðs við heilbrigðisráðherra

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Björn Zoëga forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð sem tímabundinn ráðgjafa.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Björn Zoëga forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð sem tímabundinn ráðgjafa. Vísir

Björn Zoëga, forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, hefur verið ráðinn tímabundið í starf ráðgjafa Willums Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra. Björn mun sinna ráðgjafastörfum samhliða störfum sínum sem forstjóri Karolinska.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Segir þar að ráðgjöf Björns muni beinast helst að störfum Landspítala. 

„Ljóst er að Landspítalinn er hryggjarstykkið í okkar heilbrigðiskerfi. Spítalinn verður að geta sinnt sínu mikilvæga hlutverki nú og í framtíðinni. Þá er gott samspil spítalans við aðra þætti heilbrigðiskerfisins lykilatriði,“ er haft eftir Willum í tilkynningunni. 

„Umtalsverðar breytingar á rekstri og yfirstjórn Landspítalans munu eiga sér stað á næstunni og því er gríðarlega mikilvægt að sérfróðir aðilar með þekkingu á rekstri slíkrar stofnunar séu til að veita ráð við slíka vinnu.“

Til grundvallar vinnunni sem sé framundan séu áherslur í heilbrigðismálum í nýjum stjórnarsáttmála, innleiðing þjónustutengdrar fjármögnunar og greiningarvinna, sem gerð hafi verið á framtíðarþjónustu Landspítala. 

„Velferð Landspítalans er og verður ætíð mitt hjartans mál. Það eru fjölmörg tækifæri til að styðja við og styrkja stofnunina og starfsfólkið. Ég er því þakklátur og ánægður að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum, og aðstoða nýjan ráðherra í þessu mikilvæga verkefni,“ er haft eftir Birni í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×