Makamál

Hefur þér verið „dömpað“ um jólin?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
11. desember er talinn vera dagur ársins þar sem flest sambandsslit eiga sér stað. 
11. desember er talinn vera dagur ársins þar sem flest sambandsslit eiga sér stað.  Getty

„Nei, nei, ekki um jólin!“ 

Sambandsslit, grátur og öskrandi ástarsorg er yfirleitt ekki neitt sérstaklega eftirsóknarverð stemmning, hvað þá um blessuð jólin. 

Jólin eru oft tími meiri nándar við fjölskyldu og vini og ekki laust við að við séum aðeins tilfinningaríkari á þessum tíma, aðeins viðkvæmari jafnvel.

11. desember dagur sambandsslita 

Desembermánuður er þó sá mánuður þar sem fólk getur fundið fyrir auknu stressi og álagi og kannski engin tilviljun að 11. desember sé sá dagur sem hvað algengast reynist að sambandsslit eigi sér stað. 

Að fara inn í jólahátíðina vitandi það að ástarsambandið sé á lokametrunum gæti mögulega orðið til þess að fólk ákveður að slíta sambandinu í byrjun desember en þó reyna sumir að halda út jólin og taka svo stöðuna í janúar. 

Það vilja líklegast flestir forðast sambandsslit og ástarsorg yfir hátíðarnar en þegar kemur að ástinni og öllum flóknu tilfinningunum,  getur verið snúið að reyna merkja sambandsslit inn á dagatalið, eftir því hvað hentar best. 

Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem hafa verið í ástarsambandi. 



Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.


Tengdar fréttir

Meirihluti segir áfengisneyslu vandamál í sambandinu

„Þetta er alltaf spurning um það hver er við stjórn, er það einstaklingurinn sem er að neyta áfengis eða er það áfengið og áhrifin sem stjórna einstaklingnum?“ segir Guðrún Magnúsdóttir fíknifræðingur í viðtali við Makamál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×