Makamál

Einhleypan: Bíður eftir boði á óvænt stefnumót til Parísar

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Einhleypa vikunnar á Makamálum er Þórunn Arnaldsdóttir.
Einhleypa vikunnar á Makamálum er Þórunn Arnaldsdóttir. Vísir/Vilhelm

Hún er inn og út af Tinder, vill kaffið sitt uppáhellt og bíður spennt eftir því að verða boðið á óvænt stefnumót. Þórunn Arnaldsdóttir er Einhleypa vikunnar.

Þórunn er 35 ára gömul og starfar sem markaðsfræðingur hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

„Ég er að vinna með frábæru markaðsteymi upp í HÍ. Annars er ég nú bara að reyna að sætta mig við það að vera orðin 35 ára, sem er eitthvað svona fjarlægt sem ég hélt að myndi aldrei gerast. Næst á dagskrá eru jólin og kósýheit.“

Hvernig hefur það verið að vera einhleyp á tímum heimsfaraldurs? Hefur þú getað farið á stefnumót?

„Það er bara sæmilegt en ég komst að því að mér finnst Tinderspjall ekki skemmtileg leið til að kynnast fólki þannig að það hefur alveg sett strik í reikninginn hvað skemmtanalífið hefur verið slitrótt.“

Þórunn er 35 ára gömul og starfar sem markaðsfræðingur hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. 

Hér fyrir neðan svarar Þórunn spurningum í viðtalsliðnum Einhleypan


Gælunafn eða hliðarsjálf? Gamlir vinir og fjölskylda kalla mig Tótu, annars er ég að þykjast vera mjög virðuleg og fullorðin Þórunn í samtímanum.

Aldur í árum? 35 ára. 

Aldur í anda? 27 ára. 

Menntun? Er með grunn í bókmenntafræði og master í markaðs- og viðskiptafræði.

Hvað myndi sjálfsævisagan þín heita? „Núna ég“.

Guilty pleasure kvikmynd? Closer.

Varstu skotin í einhverjum frægum þegar þú varst yngri? Já, ég var mjög skotin í Daniel Day-Lewis þegar ég var unglingur og það hefur ekkert breyst.

Talar þú stundum um þig í þriðju persónu? Nei, ég get ekki sagt það.

Syngur þú í sturtu? Ekki í sturtu en mjög mikið í bílnum.

Uppáhaldsappið þitt? Held að Twitter sé í uppáhaldi, alltaf eitthvað sniðugt í gangi þar.

Ertu á stefnumótaforritum? Ég er svona inn og út af Tinder, fínt að taka pásu frá því öðru hverju.

Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Skemmtileg, klár, óskipulögð.

Skemmtileg, klár og óskipulögð eru þau þrjú orð sem Þórunn notar til að lýsa sjálfri sér. 

Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í þremur orðum? Fyndin, kaldhæðin, skoðanaglöð.

Hvaða persónueiginleikar finnast þér heillandi? Góður húmor er alltaf heillandi og svo er skemmtilegt þegar fólk tekur sig ekki of alvarlega.

Hvaða persónueiginleikar finnast þér aldeilis ekki heillandi? Tilætlunarsemi og yfirgangur.

Hvaða dýr værir þú ef þú værir dýr? Mögulega köttur, svona hæfileg blanda af leti og ævintýraþrá í þeim.

Ef þú mættir velja einhverja þrjá einstaklinga úr sögunni til að bjóða í kvöldmat og spjall, hverja myndir þú velja? Myndi bjóða Ömmu Rúnu heitinni og láta okkur tvær duga.

Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum? Ég get gert fullkomin svona „over-easy“ egg eins og ameríkanar elska, steikt báðum megin.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila borðspil með góðum hópi og road trip út í óvissuna.

Leynilegur hæfileiki Þórunnar er að gera fullkomin egg, steikt báðum megin. 

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Allt sem inniheldur Excel.

Ertu A eða B týpa? B týpa í mjög erfiðum A heimi.

Hvernig viltu eggin þín? Harðsoðin þessa dagana.

Hvernig viltu kaffið þitt? Uppáhellt með haframjólk.

Þegar þú ferð út að skemmta þér, á hvaða staði ferðu? Það er misjafnt eftir stuðinu, stundum Röntgen eða Kaffibarinn, stundum Jungle eða Kalda. Þetta er allt skemmtilegt á sinn hátt.

Ertu rómantísk? Ekki beint en það er alveg skemmtilegt að finna rómantík í litlu hlutunum.

Draumastefnumótið? Er alltaf að bíða eftir að einhver fljúgi með mig í eitthvað svaka surprise stefnumót til Parísar. Annars er ég bara minimalísk þegar kemur að þessum málum, mjög sátt við drykk og spil á kósý stað.

Einhver söngtexti sem þú hefur sungið vitlaust? Já, örugglega en ég gúgla oftast lagatexta sem ég vil kunna svo ég sé ekki að klúðra þeim.

Hvað horfðir þú á síðast í sjónvarpinu? Er að rúlla í gegnum Better call Saul.

Hvaða bók lastu síðast? The Moonlight Child eftir Karen McQuestion.

Hvað er Ást? Eitthvað magnað sem gerist á milli tveggja aðila þegar stjörnurnar raðast upp rétt.


Fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram prófíl Þórunnar hér. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×