Innlent

Maður grunaður um að nauðga ung­lings­­­stúlku í gæslu­varð­haldi þar til á morgun

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Maður var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um kynferðisbrot um helgina.
Maður var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um kynferðisbrot um helgina. Vísir/Vilhelm

Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina vegna gruns um að hafa nauðgað stúlku á unglingsaldri. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út á morgun. 

Maðurinn var handtekinn um helgina og úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, í samtali við fréttastofu. 

RÚV greindi fyrst frá en þar kemur fram að maðurinn hafi mælt sér mót við stúlkuna í gegn um samfélagsmiðla. Hann hafi svo brotið gegn henni þegar þau hittust. 

Fréttin var uppfærð eftir að fréttastofa náði tali af Ævari Pálma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×