Viðskipti innlent

Íslenska olíuleitarfélagið Eykon Energy lagt niður

Kristján Már Unnarsson skrifar
Bjartsýni ríkti á Reyðarfirði haustið 2015 þegar rannsóknarskipið Oceanic Challenger hélt á Drekasvæðið. Á bryggjunni hittust fulltrúar Eykons, CNOOC og Petoro, sem stóðu saman að einu sérleyfanna.
Bjartsýni ríkti á Reyðarfirði haustið 2015 þegar rannsóknarskipið Oceanic Challenger hélt á Drekasvæðið. Á bryggjunni hittust fulltrúar Eykons, CNOOC og Petoro, sem stóðu saman að einu sérleyfanna. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

Eykon Energy ehf., það íslenska félag sem lengst stóð að olíuleit á Drekasvæðinu, er hætt starfsemi. Eigendur þess ákváðu í mars á þessu ári að slíta félaginu.

„Slitaferlinu er ekki formlega lokið, verður sennilega klárað fljótlega á nýju ári,“ segir Jónas Rafn Tómasson hjá KPMG-lögmönnum, sem annast slit félagsins fyrir hönd eigenda.

Fram kom í fréttum á dögunum að í nýjum stjórnarsáttmála er að finna ákvæði um að ríkisstjórnin muni ekki gefa út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Eykon var handhafi síðasta sérleyfisins en það leyfi afturkallaði Orkustofnun eftir að erlendir samstarfsaðilar Eykons ákváðu að hætta frekari leit í ársbyrjun 2018.

Fyrstu tveimur sérleyfunum á Drekasvæðið var úthlutað í Ráðherrabústaðnum í janúar 2013. Guðni Jóhannesson orkumálastjóri í miðið. Við hlið hans sitja Steingrímur J Sigfússon atvinnumálaráðherra og Ola Borten Moe, olíumálaráðherra Noregs.Vísir

Gunnlaugur Jónsson, sem var framkvæmdastjóri Eykons Energy, segir að engin starfsemi hafi verið í félaginu undanfarin ár. Menn hafi séð að engar líkur væru á því að olíuleit væri að fara í gang. Því hafi verið tekin sú ákvörðun að slíta félaginu og taka það út af fyrirtækjaskrá.

Helstu eigendur Eykons voru, auk Gunnlaugs, þeir Heiðar Guðjónsson fjárfestir, núverandi forstjóri Sýnar, og norski olíujarðfræðingurinn Terje Hagevang. Meðal annarra hluthafa voru Verkfræðistofan Mannvit og Jón Einar Eyjólfsson, sonur Eyjólfs Konráðs Jónssonar, alþingismanns og ritstjóra, sem félagið var kennt við, en hann var oft kallaður Eykon.

Sérleyfin sem íslenska ríkið gaf út til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu urðu þrjú talsins. Þau náðu inn á samvinnusvæði með Noregi vegna Jan Mayen-samnings ríkjanna.Grafík/Stöð 2

Eykon Energy ehf. var eitt þriggja íslenskra félaga sem áttu aðild að sérleyfum á Drekasvæðinu. Hin voru Íslenskt kolvetni ehf. og Kolvetni ehf. Það síðarnefnda rann síðan inn í Eykon, en sömu aðilar stóðu að mestu að báðum félögum, auk Jóns Helga Guðmundssonar í Byko.

Íslenskt kolvetni ehf. var afskráð í ágústmánuði í fyrra. Meðal eigenda voru Olís og Verkís en helstu forsvarsmenn félagsins voru Eldur Ólafsson jarðfræðingur, Kristján Jóhannsson viðskiptafræðingur og Gísli Baldur Garðarsson lögmaður.

Gunnlaugur Jónsson segir að örlög Eykons Energy hafi í raun ráðist eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu í ársbyrjun 2018 að skila inn sérleyfi sínu, en félögin voru samstarfsaðilar Eykons í olíuleitinni á Drekasvæðinu. Sú ákvörðun kom forsvarsmönnum Eykons mjög á óvart í ljósi jákvæðra upplýsinga sem borist höfðu af niðurstöðum bergmálsmælinga.

Þriðja og síðasta sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu var úthlutað við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í janúar 2014. Frá vinstri eru varaforseti CNOOC, sendiherra Kína, orkumálastjóri, iðnaðarráðherra, stjórnarformaður Eykons og fulltrúi Petoro.Stöð 2/Einar

Rannsóknargögnin þóttu raunar svo jákvæð að á fjárlögum norska ríkisins fyrir árið 2018 var gert ráð fyrir því að fjárveitingar til ríkisolíufélagsins Petoro til olíuleitar á Drekasvæðinu yrðu fjórfaldaðar. Viðbótinni var ætlað að standa straum af kostnaði við rannsóknarborun með borskipi.

Gunnlaugur segir að sú skýring, sem samstarfsaðilar Eykons gáfu fyrir því að hætta, að þau hafi ekki talið fýsilegt að halda áfram á næsta stig með litlar líkur á arðbærum olíu- og gaslindum, hafi þýtt að vonlítið var að finna nýja samstarfsaðila.

Orkustofnun áætlaði þegar sérleyfunum var skilað að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu væri kominn yfir fimm milljarða króna, þar af væru um fimmhundruð milljónir króna leyfisgjöld til ríkisins. Hlutur íslensku félaganna í leyfunum var á bilinu 7,5 til 18,75 prósent.

Vísir er í eigu Sýnar.

Frétt Stöðvar 2 af ákvörðun stjórnarflokkanna um stöðvun olíuleitar má sjá hér:

Sagt var frá siglingu fyrsta rannsóknarskips sérleyfishafa á Drekasvæðið í þessari frétt haustið 2015:


Tengdar fréttir

Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands

Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×