Innherji

Viðskiptaverðlaun Innherja 2021: Carbon Recycling, Controlant og Alvotech tilnefnd í flokknum Rokkstjarnan

Ritstjórn Innherja skrifar
Carbon Recycling, Controlant og Alvotech eru tilnefnd til Rokkstjörnu ársins.
Carbon Recycling, Controlant og Alvotech eru tilnefnd til Rokkstjörnu ársins.

Carbon Recycling International, Controlant og Alvotech eru tilnefnd til Viðskiptaverðlauna Innherja og 1881 í flokknum Rokkstjarnan. Þetta er mat dómnefndar Innherja. Verðlaunin verða veitt og úrslit kunngjörð á Fullveldishátíð atvinnulífsins, miðvikudaginn 15. desember næstkomandi.

Gísli Herjólfsson er forstjóri Controlant en hug- og vélbúnaður fyrirtækisins tryggir gæði viðkvæmra vara í flutningi og dregur úr sóun á lyfjum og matvælum.Vísir/Vilhelm

Hátæknifyrirtækið Controlant hefur gegnt lykilhlutverki við dreifingu á bóluefni gegn COVID 19. Controlant þróaði hugbúnað og vélbúnað til að fylgjast meðal annars með lyfjum í flutningi svo hægt sé að fylgjast með ástandi og staðsetningu þeirra hvar sem er í heiminum.

„Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með íslensku sprotafyrirtæki leika lykilhlutverk í því að losa heimsbyggðina úr klóm heimsfaraldursins með vöktun á bóluefni Pfizer,” kemst einn dómnefndarmanna að orði.

Vöxtur Controlant, sem er að miklum meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta, hefur verið ævintýralegur og markaðsvirði fyrirtækisins liðlega fimmfaldast á einu ári. Þá hefur starfsmannafjöldinn margfaldast og stefnir í að vera um 300 talsins í árslok. Væntingar eru um að tekin verði enn stærri skref í uppbyggingu fyrirtækisins á komandi ári. 

„Tíu ára þrotlaus vinna skilar sér svo í því að íslenskt fyrirtæki tekur þátt í að breyta og móta heimssöguna. Talandi um að vera rokkstjarna.”
Ingólfur Guðmundsson er forstjóri Carbon Recycling International.

Carbon Recycling International hefur þróað heildstæða tæknilausn til að framleiða metanól með endurvinnslu koltvísýrings. Mikil spurn er eftir tæknilausn fyrirtækisins sem hefur landað stórum samningum við kínverskar verksmiðjur á síðustu misserum. 

Dómnefnd Innherja tilnefnir fyrirtækið í þessum flokki fyrir framlag þeirra til orkuskipta. „Fyrirtækið stefnir á skráningu í Noregi og ef allt gengur upp ætti að geta orðið leiðandi í sínum geira á alþjóðavísu,” segir í rökstuðningi dómnefndar.

„Gríðarlegur vöxtur hefur verið á verðmæti fyrirtækja sem bjóða upp á umhverfislausnir í Evrópu og í Bandaríkjunum. Carbon Recycling hefur alla burði til að gera stóra hluti,” kemur enn fremur fram frá dómnefndinni.

Róbert Wessman er stofnandi og stjórnarformaður Alvotech.

Líftæknifyrirtækið Alvotech hyggur á skráningu félagsins í bandarísku kauphöllina NASDAQ á næsta ári og þá hefur einnig verið til skoðunar að skrá fyrirtækið á markað hér heima. Alvotech hefur þegar gert samninga um forsölu lyfja með samstarfssamningum við önnur stór lyfjafyrirtæki í yfir 60 löndum og hyggur á þróun fleiri lyfja, eftir að hafa klárað 60 milljarða fjármögnun á dögunum.

Eftir að hafa fjárfest fyrir meira en 100 milljarða í uppbyggingu og þróunarstarfi félagsins á undanförnum árum, sem hefur meðal annars skilað sér í rúmlega 500 störfum hér á landi, stendur Alvotech nú á tímamótum. Gangi áætlanir stjórnenda eftir gæti starfsemi fyrirtækisins orðið ein af lykilstoðum í útflutningstekjum Íslands þegar fram líða stundir. 

„Það sem Róbert Wessman og félagar eru að setja upp í Vatnsmýrinni er einstakt og akkúrat það sem Ísland þarf á að halda,” kemur fram í rökstuðningi dómnefndar Innherja.

„Sumir höfðu ekki trú á Róberti, en útlit er fyrir að þeir hinir sömu þurfi að fara að éta hattinn sinn.”

Tilnefnt er til verðlauna í eftirfarandi flokkum og munu tilnefningarnar birtast á síðum Innherja á næstu dögum:

Kaupmaðurinn

Fyrirtæki eða einstaklingur sem vakið hefur athugli í rekstri og viðskiptum með vörur til einstaklinga og fyrirtækja.

Tækniundrið

Fyrirtæki sem vakið hefur athygli fyrir nýja tækni, tæknivæðingu, tækniforrit og/eða tækniþjónustu.

Spámaðurinn

Fyrirtæki eða einstaklingur sem þótt hefur framúrskarandi í mati og skýringum á til dæmis hagkerfinu, fjármagnsmörkuðum, atvinnugeirum og/eða stjórnmálum.

Rokkstjarnan

Bjartasta vonin í íslensku atvinnulífi. Fyrirtæki sem vakið hefur athygli og þykir líklegt til þess að vaxa og ná árangri.

Samfélagsstjarnan

Fyrirtæki sem vakið hefur athygli fyrir framlag til samfélagsins í formi stuðnings við til dæmis góðgerðarmál, jafnréttismál, íþrótta- og tómstundaiðkun, umhverfismál og þess háttar.

Jafnframt verða Viðskipti ársins 2021 tilkynnt auk Viðskiptamanns ársins. Þá verða veitt sérstök Heiðursverðlaun íslensks atvinnulífs.


Innherji er nýr sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem mun einkum beina kastljósinu að viðskiptalífinu, efnahagsmálum og stjórnmálum. Fyrst um sinn verður efnið endurgjaldslaust og aðgengilegt öllum á Vísi en með tímanum verður einungis hægt að nálgast Innherja gegn greiðslu. Áhersla er lögð á vandaðar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og hlaðvörp auk þess sem Innherja er ætlaður að vera vettvangur skoðanaskipta fólks úr atvinnulífinu og stjórnmálum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×