Kalli Katrínar svarað með Svörtum fössara og Myrkum markaðsdögum Fanndís Birna Logadóttir skrifar 25. nóvember 2021 13:00 Svartur fössari nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi. Nokkur fyrirtæki, til að mynda Elko, bjóða upp á tilboð dagana fyrir til að hita upp. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Einn stærsti verslunardagur heims gengur í garð á morgun. Black Friday, eða Svartur fössari eins og hann er iðulega kallaður hér á landi, hefur fest sig rækilega í sessi meðal Íslendinga. Fjölmargar verslanir bjóða upp á afslætti í tilefni dagsins. Sumir taka þó ekki þátt vegna umhverfissjónarmiða.
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að einn stærsti verslunardagur ársins er við það að ganga í garð. Auglýsingar hafa tekið að óma í útvarpi og síður dagblaðanna eru sömuleiðis fullar af auglýsingum frá hinum ýmsum fyrirtækjum um misháa afslætti. Bandaríkjamenn fagna Þakkagjörðahátíðinni í dag og er um að ræða frídag þar í landi. Daginn eftir streyma Bandaríkjamenn í verslanir, oft á miðnætti, og kaupa vörur á töluverðum afslætti. Íslendingar hafa tekið upp þann sið. Svartur föstudagur, svört vika og svartir dagar eru meðal þess sem fólk heyrir nú í sífellu en mörg fyrirtæki hafa tekið upp á því að bjóða upp á afslætti allt að viku fyrr, sem og yfir helgina til að tengja við Stafrænan mánudag, eða Cyber Monday, sem fer alltaf fram mánudaginn eftir Svartan föstudag. Svartur föstudagur er tiltölulega nýtt fyrirbæri hér á landi en dagurinn nýtur sífellt meiri vinsælda með hverju ári sem líður. Með árunum hefur aukinn áhersla verið lögð á að finna séríslenskt heiti fyrir daginn og kom Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra með áskorun á degi íslenskra tungu fyrr í mánuðinum. „Ég skora bæði á verslanir og auglýsingastofur að næsti dagur sem er helgaður einhvers konar afsláttum verði kallaður Svartur fössari,“ sagði Katrín aðspurð um íslenskt heiti í kjölfar Dags einhleypra, eða Singles day eins og hann kallast úti í heim. Af auglýsingum að dæma virðast flestar verslanir hafa svarað þessari áskorun forsætisráðherra og tekið upp heitið Svartur fössari. Önnur fyrirtæki hafa sömuleiðis búið til sín eigin heiti, eins og Heimkaup sem notar heitið Myrkir markaðsdagar yfir helgina. Nokkur fyrirtæki, til að mynda Vegan búðin, hafa aftur á móti ákveðið að bjóða ekki upp á afslætti í tilefni dagsins og hvetja þess í stað til ábyrgrar neyslu. Sömu sögu má segja um ýmsar aðrar verslanir sem leggja upp úr sjálfbærni og umhverfisvænni framleiðslu. Þá hefur útivistafyrirtækið 66°Norður farið þá leið að láta 25 prósent af allri sölu í vefverslun á Svörtum fössara renna til Jöklarannsóknafélagsins í stað þess að bjóða upp á afslætti. Markmiðið með samstarfinu er að standa vörð um íslensku jöklana og stuðla að aukinni vitundarvakningu um breytingarnar sem eru að eiga sér stað á þeim vegna hlýnunar í andrúmsloftinu. Þannig hafa umhverfissjónarmið fengið nokkuð aukið vægi undanfarið en ekkert farasnið virðist þó vera á Svörtum fössara um þessar mundir, þar sem dagurinn hefur fest sig rækilega í sessi.
Verslun Auglýsinga- og markaðsmál Íslenska á tækniöld Tengdar fréttir „Þetta er eitthvað sem maður þarf stöðugt að vera meðvitaður um“ Stærsti netverslunardagur heims er nú genginn í garð en dagurinn nýtur sífellt meiri vinsælda með hverju ári sem líður hér á Íslandi. Verkefnastjóri sjálfbærnimælikvarða hjá Reykjavíkurborg og ein af Loftslagsleiðtogum 2021, segir mikilvægt að fólk sé meðvitað þegar kemur að neyslu sinni til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. 11. nóvember 2021 12:10 Greiðslukerfi hrundu á degi einhleypra: „Maður er orðinn vel þreyttur á þessu“ Brynja Dan Gunnarsdóttir, sem heldur úti vefsíðunni 1111.is, segir greiðslukerfi Rapyd og Valitors hafa legið niðri á milli tíu og tólf í gærkvöldi. Það sé hápunktur dags einhleypra og því hlaupi tjón af þess völdum á hundruðum milljóna króna. 12. nóvember 2021 17:51 Sprenging átt sér stað í innlendri netverslun Í nóvember jókst innlend netverslun um 353% milli ára og nam alls 7,6 milljörðum króna. Hlutfallslega var netverslun mest í raf- og heimilistækjaverslunum þar sem 41% af kaupum fóru fram í gegnum netið. 6. janúar 2021 17:01 Mest lesið „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Viðskipti erlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Þessi eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna Viðskipti Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira
„Þetta er eitthvað sem maður þarf stöðugt að vera meðvitaður um“ Stærsti netverslunardagur heims er nú genginn í garð en dagurinn nýtur sífellt meiri vinsælda með hverju ári sem líður hér á Íslandi. Verkefnastjóri sjálfbærnimælikvarða hjá Reykjavíkurborg og ein af Loftslagsleiðtogum 2021, segir mikilvægt að fólk sé meðvitað þegar kemur að neyslu sinni til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. 11. nóvember 2021 12:10
Greiðslukerfi hrundu á degi einhleypra: „Maður er orðinn vel þreyttur á þessu“ Brynja Dan Gunnarsdóttir, sem heldur úti vefsíðunni 1111.is, segir greiðslukerfi Rapyd og Valitors hafa legið niðri á milli tíu og tólf í gærkvöldi. Það sé hápunktur dags einhleypra og því hlaupi tjón af þess völdum á hundruðum milljóna króna. 12. nóvember 2021 17:51
Sprenging átt sér stað í innlendri netverslun Í nóvember jókst innlend netverslun um 353% milli ára og nam alls 7,6 milljörðum króna. Hlutfallslega var netverslun mest í raf- og heimilistækjaverslunum þar sem 41% af kaupum fóru fram í gegnum netið. 6. janúar 2021 17:01