Innherji

Endur­skipu­lagning á fjár­hag Vaðla­heiðar­ganga dregst á langinn

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Ófyrirséðar tafir á framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng höfðu í för með sér mikla kostnaðaraukningu.
Ófyrirséðar tafir á framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng höfðu í för með sér mikla kostnaðaraukningu. vísir/vilhelm

Meira en einu og hálfu ári eftir að viðræður hófust um fjárhagslega endurskipulagningu Vaðlaheiðarganga er málið enn í vinnslu. Ríkissjóður hefur frestað innheimtuaðgerðum vegna gjaldfallinna lánssamninga fram yfir áramót. 

„Boltinn er hjá fjármálaráðuneytinu og Seðlabankanum, þetta hefur verið í skoðun hjá þeim í þó nokkurn tíma. Það er verið að teikna upp sviðsmyndir sem ríkið er að vinna út frá,“ segir Eyþór Björnsson, stjórnarformaður Greiðrar leiðar ehf., sem er meirihlutaeigandi í Vaðlaheiðargöngum á móti ríkinu.

Stjórnendur Vaðlaheiðarganga hafa frá því í mars 2020 verið í viðræðum við hluthafa félagsins og lánveitanda um öflun frekari hlutafjár, lækkun vaxta í samræmi við lækkandi vaxtastig, og endurfjármögnun lánasamninga í þeim tilgangi að létta á skuldum félagsins og tryggja fjármögnun og rekstrarhæfi þess til framtíðar litið.

Gjalddagi skulda Vaðlaheiðarganga var 1. maí 2021 en ríkissjóður, sem er lánveitandi Vaðlaheiðarganga, hefur þó staðfest að hann muni fresta innheimtuaðgerðum vegna gjaldfallinna lánssamninga fram yfir áramót sé fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins ekki lokið fyrir þann tíma. Skuldir Vaðlaheiðarganga gagnvart ríkissjóði nema 18,6 milljörðum króna og vaxtagjöld á síðasta ári námu ríflega 900 milljónum.

Eignarhald Vaðlaheiðarganga er tvískipt. Ríkissjóður fer með 33 prósenta hlut en Greið leið ehf., sem er í eigu allra sveitarfélaganna á Norðurlandi eystra, fer með 66 prósenta hlut. Eftir því sem Innherji kemst næst hefur ekki verið leitað út fyrir hluthafahópinn, til dæmis til lífeyrissjóða, varðandi endurfjármögnun og hlutafjáraukningu Vaðlaheiðarganga.

Ófyrirséðar tafir á framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng höfðu í för með sér mikla kostnaðaraukningu, í formi framkvæmdakostnaðar og fjármagnskostnaðar, frá því sem upphaflega var áætlað en kostnaðaráætlun í upphafi hljóðaði upp á 8.730 milljónir króna á verðlagi ársins 2011. Þegar upp var staðið kostuðu göngin um 17 milljarða króna sem fengust í formi láns frá ríkissjóði.

Þá urðu tafirnar til þess að tekjuöflun félagsins í formi innheimtu veggjalda hófst rúmlega tveimur árum síðar en áætlað var. Til stóð að umferð um göngin og innheimta veggjalda hæfist á haustmánuðum 2016.

Áhrif heimsfaraldursins á rekstur Vaðlaheiðarganga voru veruleg en sala á veggjaldi um göngin dróst saman um 27 prósent milli ára. Heildartekjur Vaðlaheiðarganga námu 495 milljónum króna á árinu 2020 samanborið við 680 milljónir árið á undan.

Ef horft er fram hjá fjármagnsliðum og afskriftum skiluðu göngin 365 milljóna króna rekstrarhagnaði á á síðasta ári samanborið við 516 milljónir árið 2019.

Að mati stjórnenda félagsins munu áhrif faraldursins hvað varðar umferð um göngin fara minnkandi á árinu 2021 samhliða dvínun faraldursins.

„Í því sambandi er horft til þess að veruleg umferðaraukning hefur verið á fyrstu sjö mánuðum ársins 2021 samanborið við árið 2020 og nálgast umferð á fyrstu sjö mánuðum ársins 2021 þá umferð sem var á sama tímabili á árinu 2019, á fyrsta rekstrarári ganganna,“ segir í ársreikningi Vaðlaheiðarganga fyrir síðasta ári.


Innherji er nýr sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem mun einkum beina kastljósinu að viðskiptalífinu, efnahagsmálum og stjórnmálum. Fyrst um sinn verður efnið endurgjaldslaust og aðgengilegt öllum á Vísi en með tímanum verður einungis hægt að nálgast Innherja gegn greiðslu. Áhersla er lögð á vandaðar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og hlaðvörp auk þess sem Innherja er ætlaður að vera vettvangur skoðanaskipta fólks úr atvinnulífinu og stjórnmálum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×