Ljúft og létt hjá Chelsea sem styrkti stöðu sína á toppnum

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Christian Pulisic skoraði þriðja markið
Christian Pulisic skoraði þriðja markið EPA-EFE/ANDY RAIN

Chelsea náði sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan 0-3 sigur á Leicester City í hádegisleiknum í dag.

Sigur Chelsea var síst of stór enda hafði liðið gríðarlega yfirburði á vellinum frá fyrstu sekúndu til hinnar síðustu. Ekki nóg með að mörkin hafi verið þrjú heldur voru færin mun fleiri og þrisvar sinnum voru skoruð mörk dæmd af vegna rangstöðu.

Þetta byrjaði strax á góðu nótunum hjá Lundúnaliðinu sem komust yfir strax á 14. mínútu. Ben Chilwell tók þá hornspyrnu og smellti henni beint á kollinn á Antonio Rudiger sem skallaði boltann í netið. Rudiger heldur áfram að sína frábærar frammistöður.

Mark númer tvö leit dagsins ljós fljótlega og var það glæsilegasta mark leiksins. N'Golo Kante fékk þá boltann við miðlínu frá Reece James, lék fram allan völlinn að vítateig heimamanna og skaut boltanum með vinstri fæti í nærhornið. Frábært mark. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Chelsea lokaði svo leiknum á 71. mínútu. Hakim Ziyech lék þá inn á vítateiginn og kom boltanum á Christian Pulisic sem var einn á auðum sjó. Pulisic tók góða fyrstu snertingu og skilaði svo boltanum í netið milli fóta Kasper Schmeichel. 0-3 lokatölur og Chelsea er í toppmálum á toppnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira