Innlent

Merkja­vöru­þjófar á­fram í gæslu­varð­haldi

Atli Ísleifsson skrifar
Mennirnir voru handteknir eftir að hafa stolið meðal annars dýrum úlpum úr verslun Bláa lónsins.
Mennirnir voru handteknir eftir að hafa stolið meðal annars dýrum úlpum úr verslun Bláa lónsins. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjaness hefur framlengt gæsluvarðhald yfir tveimur erlendum karlmönnum sem grunaðir eru um skipulagða glæpastarfsemi.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að mennirnir hafi orðið uppvísir að því að stela úlpum úr verslun Bláa lónsins í síðustu viku og hafi öryggismyndavélar sýnt að þangað hafi þeir lagt leið sína nokkrum sinnum áður í sama tilgangi.

„Andvirði fatnaðarins sem stolið var hleypur á hundruðum þúsunda króna.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók sex manns í kjölfarið. Rannsókn hennar leiddi í ljós að mikið magn meints þýfis fannst í fórum fólksins, að mestu fatnaður og ilmvötn. Um var að ræða dýra merkjavöru.

Mennirnir tveir voru í framhaldinu úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. nóvember sem framlengt var í gær til 8. nóvember.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsinga um málið að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×