Rafíþróttir

Gen.G seinasta liðið til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gen.G tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum þar sem liðið mætir Edward Gaming.
Gen.G tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum þar sem liðið mætir Edward Gaming. Colin Young-Wolff/Riot Games Inc. via Getty Images

Kóreska liðið Gen.G varð í dag fjórða og seinasta liðið til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í League of Legends er liðið vann öruggan 3-0 sigur á Cloud9 frá Bandaríkjunum.

Fyrsti leikur liðanna var í rauninni sá eini sem bauð upp á einhverskonar spennu. Gen.G tók nokkuð sannfærandi forystu snemma leiks, en eftir tæpar 25 mínútur náðu liðsmenn Cloud9 að sná leiknum sér í hag.

Cloud9 hélt forystunni um hríð, en Gen.G vann sig hægt og bítandi aftur inn í leikinn. Þegar tæpar 35 mínútur voru liðnar af leiknum voru liðsmenn Gen.G aftur komnir með forystuna, og í þetta skipti létu þeir hana ekki af hendi. Eftir 42 mínútur af Leagur of Legends var staðan orðin 1-0, Gen.G í vil.

Eftir jafnan og spennandi fyrsta leik vonuðust hlutlausir aðdáendur að svona yrðu næstu leikir einnig. Þeim varð þó ekki að ósk sinni því Gen.G átti ekki í miklum vandræðum með næstu tvo leiki.

Þeir tóku forystuna snemma í öðrum leik liðanna og eftir aðeins 25 mínútna leik var staðan orðin 2-0.

Liðsmenn Cloud9 bitu ögn meira frá sér í þriðju viðureign liðanna, enda allt undir fyrir bandaríska liðið í þeim leik. Þeir náðu ágætis forystu snemma leiks og héldu henni lengi vel. Eftir tæplega 28 mínútna leik tóku liðsmenn Gen.g hins vegar sinn fjórða dreka, og þar með drekasál, og leikurinn fór að snúast þeim í hag við það. Sex mínútum síðar var sigurinn þeirra, og sæti í undanúrslitum tryggt.

Gen.G mætir Edward Gaming í undanúrslitum næstkomandi sunnudag, en fyrri undanúrslitaviðureignin á milli ríkjandi heimsmeistara í DWG KIA og sigursælasta liðs sögunnar, T1, fer fram á laugardaginn kemur.

Hægt verður að fylgjast með undanúrlsitunum í beinni útsendnignu á Stöð 2 eSport og hefjast útsendingar klukkan 12:00 báða dagana.


Tengdar fréttir

Edward Gaming í undanúrslit eftir oddaleik

Edward Gaming og Royal Never Give Up áttust við í átta liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í League of Legends í dag. Viðureignin fór alla leið í oddaleik þar sem Edward Gaming hafði betur.

T1 tryggði sig örugglega inn í undanúrslitin

Kóreska liðið T1 varð í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll. Gamla stórveldið mætti Hanwha Life og vann allar þrjár viðureignir dagsins nokkuð örugglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×