Rafíþróttir

T1 og Edward Gaming tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
T1 tryggði sér fyrsta sæti B-riðils.
T1 tryggði sér fyrsta sæti B-riðils. Lance Skundrich/Riot Games Inc. via Getty Images

Gamla stórveldið T1 hrifsaði efsta sæti B-riðils af Edward Gaming á Heimsmeistaramótinu í League of Legends sem fram fer í Laugardalshöll í dag. Bæði liðin fara þó upp úr riðlinum.

Fyrsti leikur dagsins var viðureign DetonatioN FocusMe og Edward Gaming. Fyrir leikinn var DetonatioN FocusMe án sigurs, en Edward Gaming hafði ekki tapað einum einasta leik.

Það breyttist ekki í þessari viðureign, því Edward Gaming vann nokkuð þægilegan sigur og hélt sigurgöngu sinni áfram.

T1 og 100 Thieves áttust við í annarri viðureign dagsins, en sá leikur var upp á líf og dauða fyrir 100 Theives. Eftir jafnar fyrstu tíu mínútur tóku liðsmenn T1 öll völd og unnu að lokum öruggan sigur. 

Tapið þýddi það að 100 Thieves átti ekki lengur möguleika á því að komast upp úr riðlinum. Sigur T1 tryggði Edward Gaming einnig sæti í átta liða úrslitum, og því í rauninni ekkert undir það sem eftir var dags, nema keppnin um fyrsta sæti riðilsins.

Þriðja viðureign dagsins var einmitt viðureign T1 og Edward Gaming þar sem að þeir síðarnefndu gátu tryggt sér efsta sæti riðilsins.

Hægt og bítandi byggðu liðsmenn T1 upp forskot sitt, og eftir rúmar tuttugu mínútur af League of Legends var brekkan orðin ansi brött fyrir Edward Gaming. Nokkrum mínútum síðar var sigur T1 í höfn, og baráttan um fyrsta sætið orðin galopin.

100 Thieves og DetonatioN FocusMe mættust svo í algjörlega þýðingarlausum leik í fjórðu viðureign dagsins. Þrátt fyrir að ekkert væri undir varð úr einn mest spennandi leikur mótsins hingað til.

Liðin skiptust á að hafa forystuna og í raun gat ekkert skilið þessi tvö lið að. Eftir rúmar 48 mínútur fengu liðsmenn DetonatioN FocusMe nóg, og reyndi að fara bakdyrameginn að höfuðstöðvum 100 Thieves. Á einhvern ótrúlegan hátt náðu liðsmenn 100 Thieves að bjarga sér frá tapi, þrömmuðu þvert yfir kortið, og kláruðu leikinn.

DetinatioN FocusMe mætti svo T1 í næst síðasta leik dagsins, en náðu ekki að fylgja eftir góðri frammistöðu og T1 vann nokkuð öruggan sigur. Tapið þýddi að DetonatioN FocusMe fór í gegnum B-riðil án þess að vinna einn einasta leik, en sigur T1 setti pressu á Edward Gaming, sem átti einn leik eftir.

Seinasti leikur dagsins var viðureign Edward Gaming og 100 Thieves. Edward Gaming þurfti á sigri að halda til að tryggja sér umspilsleik gegn T1 um fyrsta sæti riðilsins, en 100 Thieves var einungis að spila upp á heiðurinn.

100 Thieves náði afgerandi forystu snemma leiks og lét hana aldrei af hendi. Edward Gaming þurfti því að gera sér annað sæti riðilsins að góðu.

Gamla stórveldið T1 tryggði sér því fyrsta sæti B-riðils á kostnað Edward Gaming sem fer upp úr riðlinum í öðru sæti. 100 Thieves lenti í þriðja sæti, en DetonatioN FocusMe rekur lestina án þess að vinna leik.

Á morgun verður C-riðillinn kláraður þar sem að Royal Never Give Up og PSG Talon eru í kjörstöðu. Eins og áður verður hægt að fylgjat með leikjunum í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport.


Tengdar fréttir

Heimsmeistararnir enn taplausir | Allt jafnt í D-riðli

Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA tryggðu sig örugglega upp úr A-riðli á Heimsmeistaramótinu í League og Legends í dag, ásamt Cloud9. Þeir síðarnefndu fóru bakdyramegin upp úr riðlinum eftir að hafa tapað fyrstu þrem leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×