Rafíþróttir

Heimsmeistararnir hófu titilvörnina á sigri | Fullkomin endurkoma T1

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Faker og liðsfélagar hans í T1 unnu afar sannfærandi sigur í endurkomu sinni á heimsmeistaramótið í League of Legends.
Faker og liðsfélagar hans í T1 unnu afar sannfærandi sigur í endurkomu sinni á heimsmeistaramótið í League of Legends. Riot Games/Getty Images

Riðlakeppni heimsmeistaramótsins í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll hófst í dag með átta leikjum. Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA hófu titilvörn sína á sterkum sigri gegn FPX og gamla stórveldið T1 lék sér að DetonatioN FocusMe í endurkomu sinni á heimsmeistaramótið.

Fyrsti leikur dagsins var viðureign DWG KIA og FPX, en þarna mættust heimsmeistarar seinustu tveggja ára. Því var mikil spenna í loftinu þegar ljóst var að þessi tvö lið myndu mætast í opnunarleik riðlakeppninnar.

Liðsmenn DWG KIA sýndu það fljótt af hverju þeir eru ríkjandi heimsmeistarar og tóku afgerandi forystu snemma leiks. Þá forystu létu þeir aldrei af hendi, og eftir rétt tæplega hálftíma leik var sigurinn þeirra.

Svipaða sögu var að segja frá öðrum leik dagsins, en þar mættust Royal Never Give Up og PSG Talon. Þessi tvö lið mættust í undanúrslitum MSI-mótsins sem haldið var í Laugardalshöll í vor og þar fóru Royal Never Give Up með 3-1 sigur.

Rétt eins og í fyrsta leik dagsins tók Royal Never give Up forystuna snemma leiks og létu hana aldrei af hendi. Eftir tæplega tuttugu mínútna voru liðsmenn PSG Talon þó ansi nálægt því að snúa leiknum sér í hag, en allt kom fyrir ekki og Royal Never Give Up vann að lokum góðan sigur.

Í þriðja leik dagsins vann Hanwha Life nokkuð öruggan sigur gegn Fnatic, og Gen.G sigraði LNG í leik númer fjögur.

En þá var komið að stundinni sem flestir höfðu beðið eftir. Í fimmtu viðureign dagsins mættust T1 og DetonatioN FocusMe. T1 hefur unnið heimsmeistaramótið þrisvar sinnum og er þar af leiðandi sigursælasta lið í sögu mótsins. Innan þeirra raða er einnig Faker, sem af mörgum er talinn besti League of Legends spilari frá upphafi. Liðið missti af sæti á heimsmeistaramótinu í fyrra, og því biðu margir spenntir eftir því að sjá hvernig endurkoma þeirra myndi spilast.

Liðsmenn T1 sýndu það snemma að þeir voru ekki komnir bara til að vera með og hafa gaman, heldur unnu þeir einhvern mest sannfærandi sigur sem sést hefur á heimsmeistaramótinu í League of Legends. Strax frá fyrstu mínútu var augljóst í hvað stefndi, og leikurinn var ekki orðinn tuttugu mínútna gamall þegar honum var lokið.

Bandaríkin áttu svo fulltrúa í seinustu þrem viðureignum dagsins, en náðu aðeins að vinna eina þeirra. 100 Thieves þurftu að sætta sig við tap gegn Edward Gaming, áður en Team Liquid vann sterkan sigur gegn evrópska liðinu MAD Lions.

Evrópa fékk svo möguleika á að hefna fyrir tap MAD Lions gegn Bandarísku liðið þegar að Rogue mætti Cloud9 í seinustu viðureign dagsins. Leikurinn var í nokkuð góðu jafnvægi fyrstu tíu mínúturnar, en fljótlega eftir það tóku liðsmenn Rogue frumkvæðið og unnu að lokum eftir tæplega 33 mínútur af League of Legends.

Riðlakeppni heimsmeistaramótsins heldur áfram á morgun með öðrum átta leikjum, en eins og seinustu daga verður hægt að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport frá klukkan 11:00.

Úrslit dagsins og viðureignir morgundagsins

Úrslit dagsins

DWG KIA - FPX

Royal Never Give Up - PSG Talon

Hanwha Life - Fnatic

LNG - Gen.G

T1 - DetonatioN FocusMe

Edward Gaming - 100 Thieves

Team Liquid - MAD Lions

Rogue - Cloud9

Viðureignir morgundagsins

11:00: T1 - Edward Gaming

12:00: Rogue - DWG KIA

13:00: PSG Talon - Hanwha Life

14:00: Fnatic - Royal Never Give Up

15:00: Cloud9 - FPX

16:00: DetonatioN FocusMe - 100 Thieves

17:00: MAD Lions - Gen.G

18:00: Team Liquid - LNG




Fleiri fréttir

Sjá meira


×