Viðskipti erlent

Stjórn AGS ræðir framtíð Georgievu

Kjartan Kjartansson skrifar
Búlgarinn Kristalina Georgieva hefur verið framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá því í október árið 2019. Á undan var hún forstjóri Alþjóðabankans.
Búlgarinn Kristalina Georgieva hefur verið framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá því í október árið 2019. Á undan var hún forstjóri Alþjóðabankans. Vísir/EPA

Framtíð Kristalinu Georgievu, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), er enn óráðin eftir að stjórn sjóðsins tók enga ákvörðun á maraþonfundum um helgina. Stjórnin ætlar að funda aftur vegna ásakana um að Georgieva hafi gengið erinda Kínverja í dag.

Niðurstaða skýrslu lögfræðistofu sem var unnin fyrir siðanefnd Alþjóðabankans var að Georgieva, sem var forstjóri bankans, og Jim Yong Kim, forseti hans hefðu beitt starfsmenn hans óeðlilegum þrýstingi um að eiga við gögn til að fegra stöðu Kína á lista bankans yfir lönd þar sem best er að stunda viðskipti í heiminum árið 2017.

Georgieva tók við stöðu framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins árið 2019. Stjórn sjóðsins fundaði með henni og fulltrúum lögfræðistofunnar sem vann skýrsluna. Í yfirlýsingu eftir fundinn sagðist stjórnin nærri því að ljúka yfirferð sinni yfir málið.

Stjórnin ætlar að funda áfram í dag en heimildarmaður Reuters-fréttastofunnar telur líklegt að hún muni hreinsa framkvæmdastjórann af allri sök. Evrópuríki hafa þegar lýst stuðningi við að Georgieva klári skipunartíma sinn hjá sjóðnum. Bandaríkjastjórn hefur sagst vilja lengri tíma til að fara yfir ásakanirnar.

Málið er sagt varpa skugga á sameiginlegan ársfund Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hefst í dag. Georgieva á þar að leiða umræður um efnahagsbata eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn, niðurfellingu skulda og aðgerðir til þess að flýta bólusetningu.

Georgieva hefur sjálf harðneitað allri sök. Lögmenn hennar fullyrða að reglur Alþjóðabankans hafi verið brotnar við gerð skýrslunnar þar sem henni hafi verið neitað um tækifæri til að bregðast við ásökununum.

Lögfræðistofan neitar því. Í skýrslu hennar segir að bæði Georgieva og Kim hafi hlutast til um matið á viðskiptaumhverfi í Kína á sama tíma og þau unni að því hörðum höndum að fá stjórnvöld í Beijing til þess að taka þátt í meiriháttar hlutafjáraukningu í bankanum.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×