Lögregluyfirvöld ekki sannfærð um að Zodiac sé fundinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. október 2021 08:43 Teikning af Zodiac-morðingjanum og lögreglumynd af Poste, sem lést árið 2018. Alríkislögreglan og lögregluyfirvöld í Kaliforníu telja ólíklegt að Zodiac-morðinginn svokallaði sé fundinn. Hópur sem rannsakað hefur málið greindi frá því fyrr í vikunni að hafa leyst gátuna en lögregla segist ekki sannfærð.
Case Breakers, sem hefur helgað sig því að ráða óleyst sakamál, byggir niðurstöðu sína meðal annars á teikningum af morðingjanum en maðurinn sem hópurinn telur hafa myrt að minnsta kosti fimm á San Francisco-svæðinu á 7. áratugnum hét Gary Francis Poste og lést árið 2018. Hópurinn segir að á teikningum af Zodiac, sem unnar voru eftir lýsingum vitna, megi finna ör á einni viðkomandi sem séu afar lík örum sem Poste var með. Þá segist hópurinn hafa fundið nafn Poste í dulmálsbréfum sem morðinginn sendi lögreglu og fjölmiðlum. Þess ber að geta að það er varla hægt að kalla hópinn áhugamannahóp, þar sem hann samanstendur af einstaklingum sem hafa starfað innan lögreglunnar, hersins og háskólasamfélagsins. Löggæsluyfirvöld segja sönnunargögnin hins vegar síður en svo beinhörð og þá segir David Oranchak, vefhönnuðurinn sem átti þátt í því að „brjóta“ ein skilaboð Zodiac, ólíklegt að morðinginn hefði falið nafn sitt í skilaboðunum. Morðinginn hélt því fram á sínum tíma að hann hefði myrt 37 en lögregla telur fórnarlömbin hafa verið sjö, þar af fimm sem voru myrt.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira