Viðskipti erlent

Ný út­gáfa Windows nú að­gengi­leg notendum að endur­gjalds­lausu

Eiður Þór Árnason skrifar
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á útliti Windows.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á útliti Windows. Microsoft

Hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft gaf í gær út nýjustu útgáfuna af Windows-stýrikerfi sínu sem ber heitið Windows 11. Um er að ræða nokkuð umfangsmikla uppfærslu sem verður aðgengileg flestum notendum Windows 10 að endurgjaldslausu.

Að sögn Panos Panay, framkvæmdastjóra Windows-vöruþróunar, er Windows 11 ætlað að vera ferskari og einfaldari útgáfa af stýrikerfinu. Áréttar hann að lítið sé um stórvægilegar stefnubreytingar í nýju útgáfunni og hún eigi að henta nýjum jafnt sem þaulvönum notendum.

Væntir Microsoft þess að búið verði að bjóða öllum fullnægjandi Windows 10-tækjum upp á uppfærsluna fyrir mitt næsta ár.

Microsoft Teams er nú með dýpri tengingar í stýrikerfið en áður.Microsoft

Breytingar á notendaviðmóti stýrikerfisins hafa vakið hvað mesta athygli að þessu sinni, líkt og oft áður. Þar er stærst sú tilbreyting að upphafsverkreinin (e. Start taskbar) hefur verið færð á miðjan skjá en hana hefur jafnan verið að finna á vinstri hlið skjásins allt frá upphafsdögum Windows.

Enn er þó hægt að breyta staðsetningunni í stillingum og því auðvelt fyrir vanafasta notendur að færa hana á kunnuglegri stað. Einnig hafa ýmsar minni breytingar verið gerðar á útliti stýrikerfisins: Horn glugga eru orðin ávöl, valmyndir einfaldari og hin ýmsu tákn og merki fengið andlitslyftingu.

Einnig hefur Windows Store verið tekið í gegn, smáforrit (e. widgets) eiga endurkomu og boðið er um á aukna samþættingu við samskiptaforrið Microsoft Teams, svo fátt eitt sé nefnt.

Widgets snúa aftur í Windows 11 og gerir notendum kleift að fylgjast með veðri og hlutabréfum með auðveldum hætti.Microsoft

Panay segir í samtali við breska ríkisútvarpið BBC að Microsoft hafi lært af fyrri mistökum þar sem stórvægilegar og oft ófrávíkjanlegar breytingar á Windows leiddu til mikillar óánægju notenda um allan heim. Þar er sú ákvörðun að fjarlægja hina víðfrægu upphafsverkrein í Windows 8 framarlega í flokki.

Bætir Panay við að fylgst hafi verið vel með því hvernig fólk noti tölvur sínar í þróunarferlinu, hvað það smelli á og að hverju augun beinist að. Var tekið mið af þeim gögnum við hönnun Windows 11 sem framkvæmdastjórinn vonar að fái góðar viðtökur hjá þeim stóra hópi jarðarbúa sem þarf að eiga við stýrikerfið á hverjum degi í leik og starfi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×