Makamál

Þau fara á blint stefnumót í kvöld í þættinum Fyrsta blikið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hafdís, Viðar, Catherine og Katla eru þeir einstaklingar sem fara á blint stefnumót í þættinum Fyrsta blikið á Stöð 2 í kvöld. 
Hafdís, Viðar, Catherine og Katla eru þeir einstaklingar sem fara á blint stefnumót í þættinum Fyrsta blikið á Stöð 2 í kvöld.  Skjáskot.

Áhorfendur Stöðvar 2 geta búið sig undir mikla einlægni og opinberun í stefnumótaþættinum Fyrsta blikinu í kvöld.

Sjötti þáttur seríunnar verður á dagskrá klukkan 18:50 og munu áhorfendur fá að kynnast fjórum einstaklingum sem eru í leit að ástinni og fylgja þeim á blind stefnumót.

Par 1

Listræna Skagamærin Catherine Soffía hittir hina söng- og danselsku Kötlu á einlægu blindu stefnumóti. 

Catherine Soffía Guðnadóttir er 23 ára og er búsett á Akranesi. Skjáskot

Stefnumótið er persónulega mjög stór stund í lífi Catherine og verður því forvitnilegt að fylgjast með.

Katla M Jónasdóttir er 21 ár og búsett í Reykjavík. Skjáskot

Þær Katla og Catherine eiga ýmislegt sameiginlegt, og jafnvel aðeins meira en þeim hefði nokkurn tíma grunað.

Par 2

Fyrrum verslunareigandinn hin stórglæsilega Hafdís hittir fyrir rafverktakann og sundkappann hann Viðar á blindu stefnumóti.

Hafdís Stefánsdóttir er 63 ára og búsett í Garðabæ.Skjáskot

Bæði eru Viðar og Hafdís miklir orkuboltar sem elska útiveruna og þurfa alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. 

Viðar Sýrusson er 62 ára og búsettur í Reykjavík. Skjáskot

Hafdís og Viðar eiga það einnig sameiginlegt að vita fátt eins gott eins og að vera í vatni svo að það verður spennandi að sjá hvort að einhverjir töfrar muni svífa yfir vötnum á stefnumótinu. 

Hægt er að sjá sýnishorn úr þættinum hér fyrir neðan. 

Klippa: Fyrsta blikið - 6. þáttur

Öll stefnumót þáttarins fara fram á nýjum veitingastað í miðbænum sem heitir Monkeys og er staðsettur á Klapparstíg. 

Þegar tökur stóðu yfir á þáttunum voru ennþá breytingar og framkvæmdir í gangi á veitingastaðnum Monkeys sem opnaði svo fyrir gesti og gangandi í lok ágúst. 

Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.

Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. 

Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur. 

Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×