Innlent

Lengsta gos­hlé frá upp­hafi gossins í Fagra­dals­fjalli

Atli Ísleifsson skrifar
Síðast sást hraun koma upp á yfirborðið að kvöldi 18. september.
Síðast sást hraun koma upp á yfirborðið að kvöldi 18. september. Vísir/Vilhelm

„Það er alls ekki búið að lýsa því yfir að gosið sé búið. Það rýkur enn gas og hiti úr gígnum, en síðustu tíu daga hefur ekki verið mikið að frétta. Hefur verið frekar tíðindalítið.“

Þetta segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, í samtali við Vísi.

Hún segir að nú sé svo komið að um sé að ræða lengsta goshlé frá upphafi goss í mars síðastliðinn.

„Það sést þó mjög vel á vefmyndavélum að hitauppstreymið er mikið. Kvikan er því ekki að ná til yfirborðs en við þurfum bara að bíða og sjá hvað gerist næstu daga. Við höfum séð svona pásur áður,“ segir Elísabet.

Síðast sást hraun koma upp á yfirborðið að kvöldi 18. september. Lengra goshlé til þessa stóð milli 2. og 11. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×