Viðskipti erlent

Horfðu á kynningu Apple: Kynna nýja síma og úr

Samúel Karl Ólason skrifar
iPhone smartphones seen displayed on a large screen outside
Getty/Sheldon Cooper

Forsvarsmenn tæknirisans Apple halda árlega kynningu fyrirtækisins í dag. Eins og síðusta ár er kynningin stafræn en búist er við því að fyrirtækið kynni nýja síma, snjallúr og heyrnartól.

Þar er um að ræða iPhone 13, sem blaðamenn vestanhafs segja að verði svipaður iPhone 12 í útlit en búinn betri skjá og betri myndavél.

Einnig er talið að Apple muni kynna Apple Watch sjö, sem á einnig að vera með stærri og betri skjá.

Kynningin hefst klukkan fimm í dag. Hægt verður að fylgjast með henni hér að neðan.

Til viðbótar við ný tæki er einnig búist við því að nýr hugbúnaður verði kynntur á kynningu Apple. Þá er sérstaklega búist við því að fyrirtækið muni segja hvenær ný stýrikerfi fyrir síma, tölvur, úr og spjaldtölvur fyrirtækisins verði gefin út.


Tengdar fréttir

Ætla að leggja áherslu á skjái á kynningu dagsins

Forsvarsmenn Apple munu kynna nýjustu tæki fyrirtækisins í dag. Að þessu sinni er fastlega búist við því að fyrirtækið muni kynna nýja iPhone-síma og Apple Wathch-snjallúr. Það er að segja iPhone 13 línu og sjöundu kynslóð úra.

Úrskurður dómara í deilu Apple og Epic sagður mikið högg fyrir tæknirisann

Dómari í máli tölvuleikjaframleiðandans Epic gegn bandaríska tæknirisanum Apple hefur úrskurðað að Apple megi ekki koma í veg fyrir að framleiðendur smáforrita beini notendum að öðrum greiðslugáttum en þeirri sem Apple býður upp á. Fréttamiðlar ytra slá því upp að úrskurðurinn sé  mikið högg fyrir Apple.

Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum

Samkomulag sem tæknirisinn Apple hefur gert við hóp hugbúnaðarfyrirtækja gerir þeim síðarnefndu kleift að rukka viðskiptavini snjallforrita þeirra beint í stað þess að nota greiðslukerfi Apple. Málaferli standa nú yfir þar sem Apple er sakað um samkeppnisbrot vegna viðskiptahátta forritaverslunar fyrirtækisins.

Apple hyggst skima eftir barnaníð þegar myndir fara í skýið

Tæknirisinn Apple hyggst taka í notkun hugbúnað til að skima allar myndir sem farsímanotendur hlaða upp í skýið (iCloud). Hugbúnaðinum er ætlað að bera kennsl á þekktar myndir sem sýna kynferðislega misnotkun á börnum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×