Viðskipti erlent

Fram­leiðandi Oxycontins leystur upp og eig­andinn greiðir milljarða

Kjartan Kjartansson skrifar
Purdue Pharma framleiddi Oxycontin, sterkt verkjalyf, og gekk síðan hart fram til að markaðssetja í Bandaríkjunum og víða um heim. Hundruð þúsunda manna hafa látist eftir að hafa ánetjast lyfinu.
Purdue Pharma framleiddi Oxycontin, sterkt verkjalyf, og gekk síðan hart fram til að markaðssetja í Bandaríkjunum og víða um heim. Hundruð þúsunda manna hafa látist eftir að hafa ánetjast lyfinu. AP/Toby Talbot

Skiptaréttur í Bandaríkjunum lagði blessun sína yfir sátt sem lyfjafyrirtækið Purdue Pharma gerði við hóp ríkja og sveitarfélaga. Sáttin felur í sér að Sackler-fjölskyldan sem auðgaðist á ópíóíðafaraldrinum lætur af eignarhaldi sínu og greiðir milljarða til að glíma við faraldurinn.

Ríkis- og sveitarstjórnir, ættbálkar frumbyggja, stéttarfélög og fleiri höfðuðu um þrjú þúsund mál gegn Purdue Pharma þar sem fyrirtækið var sakað um að valda ópíóíðafaraldrinum með stífrí markaðssetningu á verkjalyfinu Oxycontin. Áætlað er að um hálf miljón Bandaríkjamanna hafi látið lífið í faraldrinum til þessa.

Sáttin kaupir Purdue frá málaferlunum. Sackler-fjölskyldan gefur eftir eignarhlut sinn í fyrirtækinu og greiðir 4,5 milljarða dollara en nýtur friðhelgi fyrir frekari einkamálsóknum, að sögn AP-fréttastofunnar. Purdue óskaði eftir að vera tekið til gjaldþrotaskipta vegna málsóknanna fyrir tveimur árum.

New York Times segir háværar óánægjuraddir með að Sackler-fjölskyldan verði stikkfrí frá frekari málsóknum með sáttinni. Nokkur ríki hafa þegar sagst ætla að áfrýja niðurstöðunni, þar á meðal Connecticut og Washington-ríki.

Með falið fé á aflandsreikningum

Þrátt fyrir að Sackler-fjölskyldan fái ekki að græða meira á ópíóíðum verður hún enn á meðal þeirra auðugustu í Bandaríkjunum. Robert Drain, dómarinn við skiptaréttinn, sagði málalyktirnar beiskar og harmaði hversu mikið af auðæfum Sackler-fjölskyldunnar væri falið á aflandseyjum. Sáttin hefði átt að hljóða upp á hærri upphæð.

Fyrirtækinu sjálfu verður breytt í góðgerðarfélag sem opinberir embættismenn skipa. Hagnað þess á að nýta til þess að koma í veg fyrir að fólk ánetjist ópíóíðum og veita fíklum meðferð. Fórnarlömb faraldursins gætu fengið á bilinu 3.500 til 48.000 dollara á manna, jafnvirði 447.000 til 6,1 milljónar íslenskra króna.

Sackler-fjölskyldan nýtur ekki friðhelgi gegn saksókn yfirvalda með sáttinni en AP-fréttastofan segir ekkert benda til þess enn sem komið er að hún verði látin sæta slíkri ábyrgð á faraldrinum.


Tengdar fréttir

Sac­kler fjöl­skyldan gæti misst Pur­du­e Pharma í dag

Alríkisdómari mun í dag dæma hvort sáttasamningar milli lyfjaframleiðandans Purdue Pharma, nokkurra fylkja Bandaríkjanna og fjölda sveitarfélaga verði samþykktir af ríkinu. Fylkja- og sveitarstjórnirnar stefndu lyfjarisanum vegna ópíóðafaraldursins, sem hefur dregið hálfa milljón Bandaríkjamanna til dauða undanfarna tvo áratugi.

Purdue Pharma gengst við ábyrgð á ópíóíða faraldrinum

Lyfjarisinn Purdue Pharma hefur gengist við sekt í dómsmáli í New Jersey og hefur þannig í fyrsta sinn formlega tekið ábyrgð á hlut sínum í ópíóíða-faraldrinum sem gengið hefur yfir Bandaríkin síðustu ár.

Framleiðandi Oxycontins játar sekt og greiðir milljarða

Purdue Pharma, bandaríska lyfjafyrirtækið sem framleiðir sterka verkalyfið Oxycontin, ætlar að játa sig sekt um mútugreiðslur og samsæri og greiða meira en átta milljarða dollara til að ná sátt í máli bandarísku alríkisstjórnarinnar gegn því.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×