Innlent

57 prósent þjóðarinnar vilja að ríkið veiti miklu meira fé til Landspítalans

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut.

Um 57 prósent þjóðarinnar vilja að ríki veiti miklu meira fé til Landspítalans en nú er gert, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Fréttablaðið lét gera og birti í morgun.

Um 28 prósent vilja að aðeins meira fé verði veitt til spítalans og 13 prósent að fjárframlög til spítalans haldist óbreytt. Aðeins um 2 prósent vilja að aðeins minna fé eða miklu minna fé sé veitt til spítalans.

Um 64 prósent kvenna vilja veita miklu meira fé í rekstur Landspítala en 50 prósent karla. Þeir sem eru með hærri tekjur eru líklegri til að vilja að framlögin haldist óbreytt en lítill munur er á afstöðu fólks þegar kemur að menntun og búsetu.

Samkvæmt umfjöllun Fréttablaðsins skera stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sig nokkuð úr samanborið við stuðningsmenn annarra flokka en 42 prósent þeirra vilja að framlög ríkisins til spítalans haldist óbreytt, 32 prósent að þau hækki aðeins og 20 prósent að þau hækki mikið.

„Þetta endurspeglar það sem að áður hefur komið fram. Það er eindreginn stuðningur landsmanna við opinbert heilbrigðiskerfi og sterkan Landspítala. Þetta er eindregið ákall um að haldið verði áfram á þeirri braut að byggja upp þessa mikilvægu þjónustu,“ hefur blaðið eftir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×