Henti blómapotti í lögreglubíl og gisti fangaklefa Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 11. júlí 2021 07:37 Lögregla sinnti ýmsum verkefnum í nótt. vísir/vilhelm Maður var handtekinn í miðbænum seint í nótt fyrir að henda blómapott í lögreglubíl. Nokkrar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í gærnótt víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.
Í daglegri tilkynningu sem lögregla sendir á fjölmiðla segir frá því þegar einstaklingur í annarlegu ástandi var handtekinn í miðbænum. Hann hafði þá hent blómapotti í lögreglubíl og var töluvert tjón á bílnum eftir atvikið. Maðurinn var vistaður í fangaklefa í nótt. Lögregla hafði ýmsum verkefnum að sinna í gærkvöldi í miðbænum. Eins og Vísir greindi frá var tilkynnt um hnífstungu á Hverfisgötu í gær um klukkan 17. Hvergi er þó minnst á hana í tilkynningu lögreglunnar og ekki tókst að fá neinar upplýsingar um það mál í gær. Í tilkynningunni er minnst á tvær líkamsárásir í miðbænum, eina sem varð rétt eftir miðnætti og aðra sem varð um klukkan hálf tvö í nótt. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Hlíðunum rétt eftir miðnætti og um að einhver hefði brotið rúðu í fyrirtæki í miðbænum um hálftíma síðar. Lögreglu bárust tilkynningar um þrjár líkamsárásir til viðbótar annars staðar á höfuðborgarsvæðinu; eina í Árbæ rétt eftir klukkan fimm í gærkvöldi, aðra í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið og þá þriðju í Kópavogi eftir klukkan eitt í nótt. Í tilkynningu lögreglu segir ekkert um hvort þessi mál séu til rannsóknar eða hvort einhver hafi verið handtekinn í tengslum við þau.
Lögreglumál Næturlíf Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira