Innlent

Brynjar tekur þriðja sætið og Sig­ríður í heiðurs­sæti

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Brynjar Níelsson, alþingismaður, tekur þriðja sæti á lista og Sigríður Á. Andersen, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, er í heiðurssæti.
Brynjar Níelsson, alþingismaður, tekur þriðja sæti á lista og Sigríður Á. Andersen, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, er í heiðurssæti. Vísir

Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi Alþingiskosningar hafa verið samþykktir á fundi Varðar, fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík. Fundurinn var haldinn í Valhöll í dag og munu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, leiða listana.

Í Reykjavíkurkjördæmi norður leiðir Guðlaugur Þór listann en Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðarmaður hans, situr í öðru sæti á listanum. Í þriðja sæti er Brynjar Níelsson alþingismaður og í fjórða sæti er Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi. Sigríður Á. Andersen, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, skipar heiðurssæti á listanum.

Áslaug Arna er eins og áður segir oddviti framboðslistans í Reykjavíkurkjördæmi suður en í öðru sæti er Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður og aðstoðarmaður ráðherra. Þriðja sætið skipar Birgir Ármannsson, alþingismaður, og fjórða sætið skipar Friðjón R. Friðjónsson framkvæmdastjóri.

Listana má sjá í heild sinni hér að neðan:

Reykjavíkurkjördæmi norður:

  1. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
  2. Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
  3. Brynjar Níelsson, alþingismaður
  4. Kjartan Magnússon, fyrrverandi borgarfulltrúi
  5. Bessí Jóhannsdóttir, sagnfræðingur og framhaldsskólakennari
  6. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri
  7. Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi
  8. Elsa B. Valsdóttir, skurðlæknir
  9. Kristófer Már Maronsson, framkvæmdastjóri og hagfræðingur 
  10. Viktor Ingi Lorange, ráðgjafi 
  11. Elín Jónsdóttir, lögfræðingur
  12. Helgi Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  13. Auðunn Kjartansson, múrarameistari og fyrrverandi formaður Félags múrara
  14. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, Markaðsstjóri
  15. Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðinemi
  16. Alexander Witold Bogdanski, viðskiptafræðingur og sérfræðingur hjá Samskipum
  17. Birgir Örn Steingrímsson, öryrki
  18. Harpa Ómarsdóttir, hárgreiðslumeistari og skólastjóri Hárakademíunnar
  19. Emma Íren Egilsdóttir, laganemi
  20. Kristján Guðmundsson, húsasmíðameistari
  21. Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
  22. Sigríður Á Andersen, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra

Reykjavíkurkjördæmi suður:

  1. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra
  2. Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður og aðstoðarmaður ráðherra
  3. Birgir Ármannsson, alþingismaður
  4. Friðjón R. Friðjónsson, framkvæmdastjóri
  5. Ágústa Guðmundsdóttir, frumkvöðull og prófessor emeritus
  6. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur og forstöðumaður Fjölskylduþjónustu krikjunnar
  7. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, varaborgarfulltrúi
  8. Helga Lára Haarde, M.sc. Sálfræði
  9. Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri
  10. Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum
  11. Hilmar Freyr Kristinsson, bankamaður
  12. Ingi Björn Grétarsson, öryggisráðgjafi
  13. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur
  14. Helena Kristín Brynjólfsdóttir, verðbréfamiðlari
  15. Brynjólfur Magnússon, lögfræðingur
  16. Kristín Björg Eysteinsdóttir, ráðgjafi
  17. Kári Freyr Kristinsson, framhaldsskólanemi
  18. Þórður Kristjánsson, fyrrverandi rannsóknarmaður
  19. Arnar Sigurðsson, víninnflytjandi
  20. Ólafur Teitur Guðnason, stjórnmálafræðingur og aðstoðarmaður ráðherra
  21. Nanna Kristín Tryggvadóttir, verkfræðingur
  22. Halldór Blöndal, fyrrvverandi alþingismaður og ráðherra


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×