Danir í undanúrslit í fjórða sinn

Danir fögnuðu vel í leikslok.
Danir fögnuðu vel í leikslok. Pool/Getty Images/Tolga Bozoglu

Danmörk vann 2-1 sigur á Tékklandi í 8-liða úrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í Bakú í Aserbaídsjan. Danir eru komnir í undanúrslit í fyrsta sinn í 29 ár.

Danir hófu leikinn betur. Thomas Delaney kom liðinu í forystu eftir aðeins fimm mínútna leik þegar hann var aleinn og yfirgefinn á teig Dana og skallaði inn hornspyrnu Jens Stryger Larsens.

Danir voru ívið hættulegri í fyrri hálfleiknum en Tékkar bitu þó frá sér og ógnuðu eftir föst leikatriði. Færin létu þó á sér standa, allt þar til á 42. mínútu þegar Joakim Mæhle átti gullfallega utanfótar fyrirgjöf með hægri fæti frá vinstri kanti sem fann Kasper Dolberg sem átti auðvelt með að skora sitt þriðja mark á mótinu af stuttu færi.

Danir komust því 2-0 yfir rétt fyrir hléið og útlitið dökkt fyrir þá tékknesku.

Jaroslav Silhavy, þjálfara Tékka, var ljóst að breytinga var þörf. Bæði Michael Krmencik og Jakub Jankto komu inn á í hálfleiknum.

Innan við 60 sekúndur voru liðnar af síðari hálfleik þegar Kasper Schmeichel var búinn að verja tvö skot Tékka, þar sem þeir komu af gríðarlegum krafti inn í hálfleikinn. Tveimur mínútum síðar átti Vladimir Coufal fyrirgjöf frá hægri sem Patrick Schick afgreiddi snyrtilega í vinstra hornið.

Staðan 2-1 eftir fimmta mark Schick í keppninni sem jafnaði þar með Cristiano Ronaldo sem markahæsti maður mótsins.

Tékkar reyndu að fylgja frábærri byrjun eftir en Danir unnu sig hægt og rólega aftur inn í leikinn. Eftir því sem leið á fór steikjandi hitinn í Bakú og álag síðustu daga hins vegar að segja til sín þar sem hægði gríðarlega á leiknum. Fleiri en einn og fleiri en tveir fóru meiddir, stífir og örmagna af velli.

Þreyttir Tékkar reyndu hvað þeir gátu að koma inn marki en varð ekki erindi sem erfiði. Danir kláruðu sitt, unnu leikinn 2-1, og eru komnir í undanúrslit á EM í fyrsta sinn síðan árið 1992 þegar þeir unnu mótið. Áður voru Danir í undanúrslitum 1964 og 1984.

Danir mæta þar annað hvort Úkraínu eða Englandi sem mætast klukkan 19:00 í Róm. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 EM og hefst upphitun klukkan 18:30.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira