Viðskipti erlent

Mál­svari olíurisa lýsir undir­róðri gegn lofts­lags­að­gerðum

Kjartan Kjartansson skrifar
Exxon Mobil er eitt stærsta olíufyrirtæki heims. Það hefur verið sakað um að „grænþvo“ ímynd sína undanfarin ár. Málafylgjumaður þess staðfesti það á leynilegri upptöku.
Exxon Mobil er eitt stærsta olíufyrirtæki heims. Það hefur verið sakað um að „grænþvo“ ímynd sína undanfarin ár. Málafylgjumaður þess staðfesti það á leynilegri upptöku. Vísir/EPA

Olíurisinn Exxon Mobil hefur beitt sér gegn loftslagsvísindum í gegnum hulduhópa og er í nánum samskiptum við hóp þingmanna til að grafa undan loftslagsaðgerðum Bandaríkjastjórnar. Þetta viðurkennir málafylgjumaður í samtali sem var tekið upp á laun.

Útsendari náttúruverndarsamtakanna Grænfriðunga í Bretlandi lést vera fulltrúi fyrirtækis sem vildi ráða málafylgjumann og gabbaði Keith McCoy, sem stýrir samskiptum Exxon Mobil við bandarísku alríkisstjórnina, til viðtals við sig í gegnum fjarfundarbúnað. Tók hann upp samtalið og birti breska sjónvarpsstöðin Channel 4 hluta af því í gær.

Í myndbandinu staðfestir McCoy í raun margt af því sem hefur lengi verið vitað, að stærstu olíufyrirtæki heims vinni leynt og ljóst gegn aðgerðum til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og sái efa um loftslagsvísindi.

Exxon Mobil hefur líkt og fleiri olíufyrirtæki reynt að lappa upp á ímynd sína með því að lýsa yfir stuðningi við markmið Parísarsamkomulagsins og styðja kolefnisskatt. Í auglýsingum sínum hefur það lýst sjálfu sér sem hluta af lausninni á loftlagsvánni, að sögn New York Times.

Darren Woods, forstjóri Exxon Mobil, hefur beðist afsökunar á ummælum málafylgjumanns fyrirtækisins og fullyrt að þau endurspegli alls ekki afstöðu þess til loftslagsstefnu. Hélt hann því fram að McCoy hefði ekki komið nálgt stefnumótun Exxon um málefnin.

„Við vorum slegin yfir þessum viðtölum og stöndum við skuldbindingu okkar til að finna lausnir við loftlagsbreytingum,“ sagði Woods.

Fá hulduhópa til að tala máli sínu

McCoy dregur aftur á móti upp allt aðra mynd af Exxon og því sem fyrir stjórnendum þess vakir í viðtalinu við útsendara Grænfriðunga. Þar lýsir hann meðal annars hvernig kolefnisskattur sé „frábært umræðuefni“ fyrir Exxon Mobil en að hann telji að slíkur skattur verði aldrei að veruleika í Bandaríkjunum.

„Engin er að fara að leggjatil skatt á alla Bandaríkjamenn. Kaldrifjaða hliðin á mér segir, já, við vitum það eiginlega en þetta gefur okkur frábært umræðuefni,“ sagði McCoy.

Þá viðurkenndi hann að Exxon hefði barist af krafti gegn loftslagsvísindum á sama tíma og vísindamenn fyrirtækisins sjálfs vöruðu við því að stórfelldur útblástur á gróðurhúsalofttegundum ætti eftir að valda hnattrænni hlýnun.

„Tókum við þátt í einhverjum af þessum hulduhópum til að vinna gegn sumum þessara aðgerða í upphafi? Já, það er satt,“ sagði McCoy á upptökunni.

Hann nefndi ekki hvaða hópa Exxon hefði styrkt en fyrirtækið hefur veitt milljónum dollara, jafnvirði hundraða milljóna íslenskra króna, til samtaka íhaldsmanna sem reyna að grafa undan loftslagsvísindum.

„En það er ekkert ólöglegt við það. Við vorum að passa upp á fjárfestingarnar okkar. Við vorum að passa upp á hluthafana okkar,“ sagði hann.

Sagði hann Exxon Mobil nota ýmis samtök sem virtust óháð fyrirtækinu til að tala máli sínu opinberlega.

„Við viljum ekki að það séum við sem eigum þessar umræður, sérstaklega við yfirheyrslur [þingnefnda]. Þetta snýst um að fá félögin okkar til að stíga inn og eiga þessi samtöl og svara þessum erfiðu spurningum og að vera blórabögglarnir fyrir suma þessa þingmenn, svo ekki sé betur að orði komist,“ sagði McCoy.

Fengu þingmenn til að útvatna loftslagsaðgerðir

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undanfarnar vikur og mánuði reynt að fá Bandaríkjaþing til þessa að koma sér saman um umsvifamikla innviðauppbyggingu, þar á meðal aðgerðir til þess að bregðast við loftslagsbreytingum og aðlagast þeim.

Exxon Mobil beitti sér gegn því að loftslagsaðgerðir yrðu veigamikill hluti af innviðapakkanum. McCoy sagði á upptökunni að fyrirtækið hefði sérstaklega beint spjótum sínum að hópi áhrifamikilla öldungadeildarþingmanna beggja flokka til þess að tryggja að svo yrði ekki.

Á meðal þingmannanna er Joe Manchin, öldungadeildarþingmaður demókrata frá Vestur-Virginíu. Hann er íhaldssamasti þingmaður þingflokksins og sem fulltrúi kolaríkis hefur hann oft staðið í vegi loftslagsaðgerða. Demókratar ráða öldungadeildinni en flokkarnir tveir hafa jafnmarga þingmenn. Manchin er því í oddastöðu sem hefur veitt honum gífurleg áhrif á þingmál flokks hans.

McCoy sagðist ræða við fulltrúa Manchin vikulega þar sem hann væri áhrifamesti öldungadeildarþingmaðurinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×