Makamál

Uppáhalds íslensku ástarlögin: „Góð leið til að tryggja sér stelpu, ævilangt“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Álitsgjafar Makamála deila með lesendum sínum uppáhalds íslensku ástarlögunum.
Álitsgjafar Makamála deila með lesendum sínum uppáhalds íslensku ástarlögunum.

„Tónlist og taktur finna sér leið í leynda staði sálarinnar,“ sagði heimspekingurinn Plato. Ástarlög eiga sér oft á tíðum stóra sögu í lífi fólks og hafa mikil áhrif á okkur. Réttu lögin snerta á djúpum tilfinningum og geta kallað fram sterkar minningar. 

Flestar ástarsögur eiga sér eitthvað lag eða jafnvel lög og ekki er óalgengt að pör eigi sér eitthvað ákveðið ástarlag sem „lagið sitt“ og tengist þeirra sögu og minningum. 

Makamál fengu til liðs við sig vel valda álitsgjafa til að taka saman lagalista með sínum uppáhalds íslensku ástarlögum. Hver álitsgjafi segir frá nokkrum af sínum lögum og afhverju það lag varð fyrir valinu. 

Hér er hægt að nálgast lagalistann á Spotify. 


Ágústa Eva Erlendsdóttir - Söng- og leikkona

  • Tvær stjörnur - Megas 

Ultimate besta lag veraldar. Hrein, sterk og ómenguð ást sem flýgur hærra og lengra en jarðleg tilvist, tími og rúm. Mindblowing lag í alla staði sem er ort með svo einstakri einlægni og óeigingirni að verkið verður algerlega ósnertanlegt.

  • Hjá þér - Sálin 

Þetta er hin eina sanna ástar-kraftballaða Íslands. Lagið hefur einhvern ótrúlegan sjarma sem gengur lóðrétt ofan í fólk, burt séð frá manngreiningum eða tónlistarsmekk þá komast fáir upp með að öskra ekki af innlifun með textanum á góðu mannamóti. Ég myndi segja að hliðstæða þessa lags erlendis væri til dæmis You'll Never Walk Alone. Það er bara eitthvað mikið að ef þú stendur bara á hliðarlínunni og gefur ekki allt í það.

  • Þú átt mig ein - Villi Vill

Ég myndi DEYJA ef einhver myndi senda mér þetta lag eða spila það fyrir mig. Góð leið til að tryggja sér stelpu, ævilangt. Bara að spila þetta lag. 


Jónas Sig - Söngvari 

Jónas Sig í þætti Gumma Ben og Sóla Hólm.
  • Ást -  Magnús Þór Sigmundsson 

Það sem mér finnst einkenna góð ástarlög er þegar þau snerta hjarta manns með þeim hætti að maður finnur að sá sem samdi lagið var virkilega tengdur einhverri uppsprettu. Svoleiðis er bara ekki hægt að „feika“. Yfirleitt þegar ég heyri svoleiðis lög þá hugsa ég: „Oh, ég vildi óska að ég hefði samið þetta lag!“

  • Ólýsanleg - Magnús Þór Sigmundsson

 Magnús er í svo miklu uppáhaldi hjá mér og sem höfundar ástarlaga sem öll eru tileinkuð konunni hans, henni Jenní, þá er hann algjörlega í sérflokki. Þessi tvö lög sem ég nefni eru svo ótrúlega hrein frá hjartanu að maður getur ekki annað en fundið hvað hann er að meina sem hann er að segja. 

  •  2 birds -  Mugison

Alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér enda fáir með jafnstórt hjarta og höfundurinn.

  • Þó líði ár og öld - Björgvin Halldórsson

Að lokum lagið sem vinur minn Jón Haraldsson söng í brúðkaupi okkar hjóna, Þó líði ár og öld. Það er það fallega við tónlist sem öðlast sess í lífinu manns. Galdur laganna vex með hverju ári sem líður.


Friðrik Dór - Söngvari 

Friðrik Dór.
  •  Tvær stjörnur - Megas

Algjörlega stórkostlegt lag og texti.

  • Blindsker - Bubbi

Elska þetta lag. Allt kúl við það. Ég man hvernig það greip mig strax við fyrstu hlustun þegar ég var unglingur.


Guðrún Eyfjörð (GDRN) - söngkona 

GDRNAnna Maggy
  • Tíu Dropar - Moses Hightower

Rómantíkin nær hámarki í Tíu dropum eftir Moses Hightower. Fjallar um kaffi en vekur upp tilfinningar sem eiga einna best við ástina sjálfa.

  • Tvær stjörnur - Megas

Og talandi um texta – einn fallegasti texti íslensku tónlistarsögunnar er að finna í laginu Tvær stjörnur.

  • Orðin mín - Memfismafían - Sigurður Guðmundsson

Orðin mín er eitt af mínum allra uppáhalds lögum, einna mest út af textanum sem Bragi Valdimar nær að setja saman svona snilldarlega.


Katrín Halldóra - Söng- og leikkona

Katrín Halldóra.Saga Sig
  • Ennþá man ég hvar – Góss

Eitt af mínum uppáhalds lögum og hér í dásamlegum flutningi góðra vina í hljómsveitinni Góss.

  • Með þér – Ragnheiður Gröndal

Ástarlag eftir Bubba sem ég hef alltaf elskað, textinn er svo fallegur. Hér í óaðfinnanlegri útgáfu Röggu Gröndal.

  • Man ég þinn koss – Ingibjörg Þorbergs

Sjávarplássar rómantík svífur yfir vötnunum í yndislegum flutningi Ingibjargar Þorbergs.

  • Allt mitt líf – Ellý Vilhjálms

Sjóðandi heitt ástarlag með minni konu, mjög vinsælt brúðkaupslag.


Björn Stefánsson - Tónlistarmaður og leikari

Mynd - Íris Dögg Einarsdóttir
  • Fallegur Dagur - Bubbi Morthens 

Að mati sumra fjallar þetta lag ekki beint um ástina en það gerir það svo sannarlega fyrir mig. Mörg Bubba lög eiga svo sannarlega heima á þessum lista en þetta kemur fyrst upp í hugann. Einlægt og fallegt. 

  • Tvær Stjörnur - Megas 

Einstakt lag sem nær að fanga angurværð, depurð, söknuð og ást.

  • Fyrir Þig - Dátar 

Þetta lag hefur yfir sér sérstakan ástarblæ sem erfitt er að útskýra með orðum. Það er fallegt en sorglegt. Það er einlægt en samt eitthvað svo flókið. Það segir mismunandi sögu í hvert skipti sem ég heyri það.


Áður hafa Makamál tekið saman tvo lagalista, annars vegar með bestu ástarsorgar lögunum og hins vegar með kynþokkafyllstu lögunum. 

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast lagalistana hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Kynþokkafyllstu lögin: Sjáðu lögin sem koma þeim til

Tónlist hefur óneitanlega mikil áhrif á andrúmsloftið og stemmninguna hverju sinni. Jólalögin koma okkur í jólaskap. Við grátum í koddann við sorgleg ástarlög og hlustum á taktfasta og peppandi tónlist þegar við erum að hreyfa okkur. Svo er það kynþokkinn!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×