Reitir kaupa fjórar verslunareignir af Festi Árni Sæberg skrifar 1. júlí 2021 10:13 Húsnæði Krónunnar á Selfossi er meðal fasteigna sem Reitir kaupa af Festi. Mynd/Sunnlendingur.is Fasteignafélögin Reitir og Festi hafa komist að samkomulagi um kaup Reita á fjórum fasteignum sem hýsa meðal annars verslanir Krónunnar. Kaupverðið er rúmir fjórir milljarðar króna og að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé.
Húsnæðið sem um ræðir er tæplega þrettán þúsund útleigufermetrar af vönduðu verslunarhúsnæði. Þessar fasteignir eru að Háholti 13-15 í Mosfellsbæ, Dalbraut 1 á Akranesi, Austurvegi 1-5 á Selfossi og Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Eignirnar eru í útleigu til fjölmargra öflugra leigutaka en þar ber helst að nefna Krónuna sem stendur fyrir tæplega 50 prósent leigutekna af húsnæðinu. Krónan mun gera fimmtán ára leigusamninga við Reiti á Dalbraut, Austurvegi og Hafnargötu. Aðrir leigutakar eru meðal annars Rúmfatalagerinn, Mosfellsbakarí, apótek, Sveitarfélagið Fjarðabyggð, Pizzan, Penninn, Mannvit og Lindex. Leigutekjur á ári nema um 320 milljónum króna og meðaltími leigusamninga er tæp tíu ár. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður Reita hækkar um 250 milljónir króna á ársgrundvelli. Kaupsamningurinn er gerður með öllum hefðbundnum fyrirvörum, svo sem niðurstöðum áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og fjármögnun viðskiptanna. Þá er forkaupsréttur á húsnæðinu að Austurvegi á Selfossi sem þarf að aflétta fyrir kaupin.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Reitir fasteignafélag Festi Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira