Sáttin um sjávarútveginn Guðmundur Ragnarsson skrifar 29. júní 2021 15:31 Það hefur alltaf valdið mér vonbrigðum hvernig þeir stjórnmálaflokkar sem staðið hafa vörð um fiskveiðistjórnunarkerfið fyrir sérhagsmunahópana í sjávarútvegi hefur tekist að kæfa málið í aðdraganda þingkosninga, síðan kerfið var sett á. Sjaldan hefur það verið sýnilegra en á síðasta kjörtímabili hjá ríkistjórnarflokkunum hvað hagsmunagæslan er orðin siðlaus og grimm. Hagsmunir þjóðarinnar skipta engu máli fyrir sérhagsmunahópinn sem þarf að hafa góðan. Umræðunni hefur alltaf verið beint að því að sátt ríki um fiskveiðistjórnunarkerfið og þannig náð að draga athyglina frá því að í raun eru þetta tvö kerfi um stjórn fiskveiða. Það er sátt um það hjá þjóðinni að við stjórnum nýtingu úr fiskistofnum eftir vísindalegri ráðgjöf. Þar er sáttin. Það er hins vegar engin sátt um hinn hluta kerfisins sem er úthlutun á veiðiheimildunum og hvað þeir sem þess njóta eiga að greiða fyrir til eiganda sjávarauðlindarinnar sem er þjóðin. Þar er engin sátt. Það eru að verða hraðar breytingar í umhverfi sjávarútvegsins og fjórða iðnbyltingin að koma þar hratt inn, þannig að ýmsar hugmyndir sem voru uppi fyrir tíu til fimmtán árum eru úreltar í dag. Það verður að taka tillit til þess svo atvinnugreinin haldi samkeppnisstöðu sinni þó gerðar verði breytingar. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru mörg í fremstu röð og það er gott. Erum í kapphlaupi við tímann Eins og málin hafa fengið að þróast er það aldrei mikilvægara en í komandi kosningum að þeir stjórnmálaflokkar sem stundað hafa grimma hagsmunagæslu fyrir fámennan sérhagsmunahóp fái ekki atkvæði kjósenda. Við verðum að gera breytingar á auðlindaákvæði stjórnarskrárinnar sem fyrst, að afnotarétturinn sé tímabundinn og að fyrir hann eigi að greiða. Það er hluti af sáttinni. Sá mikli ofsagróði sem hefur verið í sjávarútveginum og hvert hann rennur er ekki að skapa sátt í samfélaginu og á því verður að taka. Það þarf nýja skilgreiningu og hugsun inn í umræðuna, sem er að þjóðin er eigandi auðlindarinnar og þeir sem fá úthlutaðum veiðiheimildum eru verktakar hjá þjóðinni. Afraksturinn af auðlindinni verður að vera öllum sýnilegur. Eigandinn hefur fullan rétt á að hafa yfirsýn yfir hvað sjávarauðlindin er í raun að gefa af sér og ákveða réttlát nýtingargjöld, en ekki að verktakinn komi með þær upplýsingar inn í þjóðarbúskapinn. Það er stór hluti af sáttinni að sett verði upp eftirlit með því að þau afurðaverð sem eru að skila sér til Íslands séu rétt. Sjómenn geta þá líka verið öruggir um að laun þeirra séu reiknuð út frá réttum afurðaverðum. Sveitarfélögin og landsbyggðirnar munu njóta góðs af þessu líka. Verðlagsstofa skiptaverðs á að taka þetta verkefni að sér og það á að efla hana eins og þarf. Stofnun sem hagsmunagæsluflokkarnir hafa passað mjög vel upp á að halda í fjársvelti til að hún gæti ekki starfað eðlilega. Þarf nýja hugsun og breytingar Að hafa allt á einni hendi, veiðar, vinnslu og sölu á erlenda markaði er vandmeðfarið. Enda er umræða um tvöfalda verðlagningu alltaf að verða háværari. Fyrirtæki selur sínu erlenda sölufélagi afurðirnar, það er afurðaverðið sem skilar sér til Íslands. Síðan er allt annað verð og hærra sem fyrirtækið fær fyrir afurðina í áframsölu og það kemur hvergi fram? Það þarf að koma með nýja hugsun og nálgun þegar eigandinn veit hvað eignin hans er að gefa af sér. Þau fyrirtæki sem sjá um nýtingu auðlindarinnar fái vegna góðs rekstrar að skila eðlilegum hagnaði til að halda áfram að byggja sig upp, eigandinn fái svo mismuninn. Þessi sérhagsmunahópur hefur verið harðastur á móti því að taka upp annan gjaldmiðil svo koma megi á stöðugleika í þessu landi. Eytt í það milljörðum og meðal annars rekið heilan fjölmiðil til þess. Þess vegna þarf einnig að hugsa leið til þess að gengishagnaðurinn sem verður til með sveiflu á krónunni komi líka til eigandans en ekki bara í vasann hjá verktakanum. Það er líklegt að áhugi þeirra á krónunni hverfi mjög hratt og stöðugleiki í efnahagsmálum verði verðmæti hjá þeim verði þessu breytt. Það er allra hagur að ná sátt um sjávarauðlindina Eins og staðan er orðin í dag er þessi hópur að leggja undir sig stóran hluta fyrirtækjareksturs á Íslandi með ofsagróða úr sjávarauðlindinni. Þetta verður að stoppa áður en þetta endar eins og það stefnir í, að það verði húsbændur og hjú sem búa á þessu landi. Það þarf ekki að útskýra hverjir yrðu húsbændur og hverjir yrðu hjúin. Það bíða eftir okkur óteljandi samfélagsleg verkefni sem ekki verða framkvæmd nema með auknum tekjum ríkissjóð. Því er mikilvægt og réttlátt að þjóðin fá réttan skerf af afrakstri sjávarauðlindarinnar sem hægt er að nýta í þessi verkefni. Það er mín skoðun að það þjóni best hagsmunum sérhagsmunahópsins að átta sig á stöðunni og koma að borðinu um að búa til sátt hjá þjóðinni, það mun verða fyrirtækjunum og atvinnugreininni til heilla. Með hroka sínum og áhrifum inn í stjórnmálaflokka eru þeir búnir að koma þessum málum í algert óefni og engin sýn um sátt með sama áframhaldi. Veitið okkur sem viljum tryggja eignarétt þjóðarinnar og réttlátan arð þjóðarinnar af sjávarauðlindinni brautargengi í komandi þingkosningum. Ekki viljum við hafa stjórnmálaflokka sem hugsa meira um hagsmuni sérhagsmunahópa en hagmuni þjóðarinnar. Höfum þetta sem eitt af stóru málunum í komandi kosningum, hver og einn kjósandi hefur gífurlega hagsmuni að farið verði í þessi mál og gerðar róttækar breytingar. Höfundur skipar fjórða sæti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Guðmundur Ragnarsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar