Sommer sá við Mbappe og heims­meistararnir úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sommer sér við Mbappe.
Sommer sér við Mbappe. Mihai Barbu/Getty

Sviss gerði sér lítið fyrir og sló út heimsmeistara Frakka í 16-liða úrslitunum á EM 2020. Úrslitni réðust í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var 3-3 eftir framlengingu.

Heimsmeistararnir voru taldir mun sigurstranglegri fyrir leikinn í kvöld en leikurinn fór fjörlega af stað og Sviss voru ekkert síðri í upphafi.

Þeir komust svo yfir á fimmtándu mínútu. Glæsileg fyrirgjöf rataði beint á kollinn á Haris Seferovic sem stangaði boltann í netið.

Frakkarnir reyndu og reyndu en voru daprir í fyrri hálfleik. Staðan 1-0 fyrir Sviss í hálfleik og þeir fengu kjörið tækifæri í upphafi síðari hálfleiks.

Þeir fengu nefnilega vítaspyrnu eftir að Benjamin Pavard straujaði Steven Zuber. Ricardo Rodriguez fór á vítapunktinn en Hugo Lloris sá við honum.

Tveimur mínútum síðar, eða á 57. mínútu, jöfnuðu Frakkar svo metin og þar var að verki Karim Benzema. Hann tók boltann frábærlega með sér og vippaði yfir Sommer.

Benzema var ekki hættur því hann skoraði annað mark sitt og Frakka þremur mínútum síðar eftir frábært samspil heimsmeistaranna inn í vítateig Sviss.

Paul Pogba virtist vera negla síðasta naglann í kistu Sviss er hann skoraði með frábæru þrumuskoti á 75. mínútu en Sviss voru þó ekki hættir.

Haris Seferovic stangaði aðra fyrirgjöf í netið níu mínútum fyrir leikslok og hleypti öllu upp í loft.

Sviss jafnaði svo metin á 91. mínútu. Mario Gavranovic fékk góða sendingu í gegnum miðsvæðið, lék á einn varnarmann Frakka og hamraði boltanum í hornið. 3-3 og því þurfti að framlengja.

Í framlengingunni var ekkert mark skorað þrátt fyrir nokkur ágætis færi og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar fóru fyrstu níu vítin í netið áður en Yann Sommer varði síðustu vítaspyrnu Frakka; frá stórstjörnunni Kylian Mbappe.

Það verða því Sviss og Spánn sem mætast í átta liða úrslitunum en leikurinn fer fram á föstudag í St. Pétursborg.


Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira