Þjóðverjar áfram eftir tvær endurkomur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Volland og Kimmich fagna sæti í 16-liða úrslitunum.
Volland og Kimmich fagna sæti í 16-liða úrslitunum. Sebastian Widmann/Getty

Þýskaland er komið áfram í sextán liða úrslitin eftir 2-2 jafntefli gegn Ungverjalandi á heimavelli í Þýskalandi í kvöld.

Þjóðverjarnir voru með þrjú stig fyrir leik kvöldsins en Ungverjarnir voru með eitt eftir jafntefli gegn Frakklandi.

Það voru Ungverjar sem komust yfir strax á elleftu mínútu. Frábær fyrirgjöf Roland Sallai rataði beint á kollinn á Adam Szalai sem stangaði boltann í netið.

Þannig stóðu leikar í hálfleik og þeir þýsku virtust ekki ná sér á strik á heimavelli.

Þeir jöfnuðu hins vegar metin á 66. mínútu. Hörmulegt úthlaup Peter Gulasci varð til þess að Kai Havertz gat lagt boltann í autt netið.

Ungverjarnir voru þó ekki hættir því þeir komust aftur yfir og það í næstu sókn. Eftir gott spil féll boltinn fyrir Andras Schafer sem stangaði boltann framhjá Manuel Neuer.

Þeir þýsku sóttu og sóttu og það bar árangur sex mínútum fyrir leikslok er varamaðurinn Leon Goretzka jafnaði metin.

Þjóðverjar enda í öðru sæti riðilsins með fjögur stig en Ungverjar sitja eftir með sárt ennið.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira