Depay og Wijn­aldum fögnuðu nýjum samningum með stór­leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það var létt yfir leikmönnum Hollands í dag og þá sér í lagi markaskorurunum.
Það var létt yfir leikmönnum Hollands í dag og þá sér í lagi markaskorurunum. Laurens Lindhout/Getty

Holland vann 3-0 sigur á Norður Makedóníu í síðustu umferð C-riðilsins en á sama tíma vann Austurríki 1-0 sigur á Úkraínu.

Memphis Depay og Georginio Wijnaldum voru frábær í liði Hollands í dag en þeir sáu um markaskorunina.

Depay skoraði fyrsta markið á 24. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.

Staðan var 1-0 í hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks skoraði Georginio Wijnaldum eftir stoðsendingu Depay.

Sama upskrift var á 58. mínútu er Depay lagði upp mark fyrir Wijnaldum og lokatölur 3-0 í kveðjuleik Gorans Pandev.

Holland endar með níu stig á toppi C-riðilsins, Austurríki í öðru sætinu með sex stíg, Úkraína í þriðja sætinu með þrjú en Norður Makedónía án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira