Austur­ríki byrjar með góðum sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Austurríki hóf EM á frábærum 3-1 sigri á Norður-Makedóníu.
Austurríki hóf EM á frábærum 3-1 sigri á Norður-Makedóníu. Cristi Preda/Getty Images

Austurríkismenn voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og það var því fyllilega sanngjarnt þegar Stefan Lainer kom þeim yfir á 18. mínútu eftir magnaða sendingu Marcel Sabitzer. 

Adam var þó ekki lengi í paradís en aðeins tíu mínútum síðar jafnaði gamla brýnið Goran Pandev metin fyrir Norður-Makedóníu.

Hann fylgdi þá eftir er Daniel Bachmann missti knöttinn eftir árekstur við leikmann Norður-Makedóníu. Boltinn féll fyrir Pandev sem gat ekki annað en skorað og staðan 1-1 er liðin gengu til búningsherbergja þegar flautað var til hálfleiks.

Staðan var 1-1 allt þangað til tólf mínútur lifðu leiks. Þá kom varamaðurinn Michael Gregoritsch Austurríki yfir á nýjan leik eftir frábæra fyrirgjöf David Alaba.

Marko Arnautovic, annar varamaður, kom Austurríki í 3-1 í uppbótartíma og þar við sat.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira