Matur

BBQ kóngurinn: Taco birria í steypujárnspotti

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Girnileg Taco uppskrift í boði grillmeistarans og BBQ kóngsins Alfreðs Fannars Björnssonar. 
Girnileg Taco uppskrift í boði grillmeistarans og BBQ kóngsins Alfreðs Fannars Björnssonar. 

Það er fátt eins tilvalið í matarboðið eins og heimagert Taco. Í fjórða þætti BBQ kóngsins á Stöð 2 sýnir grillmeistarinn Alfreð Fannar skemmtilega uppskrift af Taco sem hann útfærir á grillinu. 

Í þennan rétt nota ég glóðapott. Ég set kol undir og ofan á pottinn og stjórna þannig hitanum. Hér nota ég 21 kol en þá verður potturinn 175 gráðu heitur. Að elda í glóðapotti er ekki aðeins flott heldur þarf ekki að nota grill. Það er kjörið að taka svona pott með í næstu útilegu.

Hér er hægt að nálgast klippu úr þættinum og fyrir neðan má sjá uppskriftina og aðferð.

Klippa: BBQ kóngurinn - Taco birria í steypujárnspotti

Taco birria í steypujárnspotti

  • Taco
    • 2 kg tveggja beina stórt nautarif
    • 1 laukur
    • 4 hvítlauksgeirar
    • 2 tómatar
    • 2 msk oregano
    • 2 msk SPG-kryddblandan eða salt og pipar
    • Krukka af chipotlemauki eða 130 g
    • Vatn til að hylja kjötið í pottinum
    • Safi úr einni límónu
    • Tortillur
    • 1 rauðlaukur
    • Lófafylli af fersku kóríander
    • Rifinn mozzarellaostur

Aðferð

  1. Skerið lauk, hvítlauk og tómata gróft og setjið í botninn á pottinum.
  2. Úrbeinið nautarif og setjið í pottinn. Óþarfi að snyrta fitu af kjötinu þar sem við notum fituna sem bráðnar af því til að steikja tortillurnar upp úr.
  3. Bætið oregano, SPG og chipotle-mauki út í pottinn. Hellið vatni yfir svo það hylji kjötið.
  4. Kveikjið upp í 21 koli. Þegar kolin eru orðin heit setjið þið 7 kol undir pottinn og 14 kol á lokið. Þannig ætti hitinn í pottinum að vera um 175 gráður.
  5. Eldið í 1½ til 2 klukkutíma eða þangað til kjötið verður mjúkt og gott.
  6. Takið kjötið upp úr og fleytið fituna af soðinu í pottinum og geymið fyrir skref nr. 9.
  7. Látið vökvann sjóða niður á meðan þið skerið kjötið niður í mjög litla bita og undirbúið afganginn.
  8. Kyndið grill í 200 gráður og setjið pönnu á grillið.
  9. Steikið tortillur á báðum hliðum upp úr fitunni sem þið veidduð upp úr pottinum.
  10. Fínsaxið rauðlauk og kóríander.
  11. Raðið kjötinu í miðjuna. Stráið rauðlauk, rifnum mozzarella og kóríander yfir.Lokið tortillunni og steikið hana þar til hún verður stökk og osturinn bráðinn.
  12. Setjið soð úr pottinum í litla skál, dýfið tortillunni í soðið og kreistið smá límónu yfir. Nammmm, hvað þetta er gott!
Hægt er að nálgast alla þætti BBQ kóngsins á Stöð 2+.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkrar girnilegar uppskriftir úr fyrri þáttum en fyrir áhugasama er hægt að nálgasta alla fyrri þætti BBQ kóngsins á Stöð 2+.

Reykt kúrekakássa í steypujárnspotti

Lax á sedrusviðarplatta



Tengdar fréttir

BBQ kóngurinn: Spatchcock-kjúklingur með hvítri Alabama BBQ-sósu

Nú ættu flestir grillarar landsins að vera búnir að dusta rykið af grillspöðunum og koma sér í réttu stemninguna fyrir sumarið. Grillmeistarinn sjálfur, Alfreð Fannar Björnsson, sér til þess að enginn ætti að vera uppiskroppa með hugmyndir þegar kemur að því að undirbúa skemmtilegt grill matarboð. 

BBQ kóngurinn: Þrefaldur alvöru smash borgari

„Við ætlum að gera þrefaldan smash-hamborgara. En þá er hakki hnoðað saman í kúlu og þær þjappaðar niður með spaða á pönnu í örþunna hamborgara sem verða stökkir á köntunum,“ segir grillmestarinn Alfreð Fannar Björnsson betur þekktur sem BBQ kóngurinn. 

BBQ kóngurinn fer í spor Salt Bae

Alfreð Fannar Björnsson, betur þekktur sem BBQ kóngurinn, tók fyrir hamborgara í síðasta þætti af BBQ kónginum á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×