Bílar

50% aukning á nýskráningum á milli mánaða

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Bílasala gengur betur en á síðasta ári.
Bílasala gengur betur en á síðasta ári.

Alls voru 1898 ökutæki nýskráð í maí, það er aukning um 50% frá síðasta mánuði, þegar 1264 ökutæki voru nýskráð. Flest nýskráð ökutæki í nýliðnum maí mánuði voru af Toyota gerð, eða 263 ökutæki. Kia var í öðru sæti með 237 og Suzuki í þriðja með 163 ökutæki.

Af nýskráðum Toyota bifreiðum voru flestar af undirtegundinni Rav4 eða 88 og Yaris næstflestar, eða 43.

Suzuki er hefur greinilega gengið vel að selja Vitara bifreiðar því Vitara var mest nýskráða undirtegundin í maí.

Orkugjafar

Flest nýskráð ökutæki í maí ganga fyrir bensíni eingöngu. Næst flest þeirra ganga eingöngu fyrir dísel. Bensín knúin telja 532 og dísel 325.

Nýskráningar hreinna rafbíla voru 236. Þar er Nissan Leaf efstur á blaði með 28 nýskráningar, Kia Niro með 25 og Skoda Enyaq 80 með 21, sem og Hyundai Kona.

Samanburður á milli ára

Í maí í fyrra voru 1112 ökutæki nýskráð, aukningin á milli ára nemur því rúmlega 70%. Maí í fyrra litaðist talsvert af kórónaveirufaraldrinum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×