Panta mat á 9. holu með nýrri lausn frá Dineout.is Dineout.is 31. maí 2021 13:00 Marinó Flóvent Golfarar nýttu sér nýja snertilausa pöntunarþjónustu Dineout.is á Palla Open. Dineout.is kynnti nýja snertilausa pöntunarþjónustu á Hlíðavelli um liðna helgi en Dineout.is styrkti Palla Open golfmótið sem þá fór fram. Um tvöhundruð manns tóku þátt í mótinu og nýttu sér að geta pantað veitingar með nýrri lausn Dineout.is „Golfarar geta nú pantað veitingar á 9. holu með því að leggja símann við QR kóða á skilti við holuna. Þá birtist allt sem stendur til boða og þú hakar við það sem þig langar í. Veitingarnar sækirðu svo í Klúbbhúsið áður en þú leggur af stað á 10. holu. Á 18. holu er einnig hægt að panta með sama hætti og þá eru veitingarnar tilbúnar þegar fólk kemur í hús,“ útskýrir Inga Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og einn fjögurra eigenda Dineout.is. „Þetta gekk frábærlega vel um helgina og golfararnir voru mjög ánægðir með þennan möguleika. Við höfum einnig sett pöntunarþjónustuna upp í golfhermum GKG sem sparar golfurum mikinn tíma en fólk vill geta nýtt allan þann tíma sem það fær úthlutað í herminum til að golfa. Þá er frábært að geta pantað drykki og veitingar á þennan hátt og fá þá til sín inn í herminn.“ Inga Tinna segir þessa nýju lausn nýtast mjög víða og hefur Dineout.is hafið uppsetningu á fleiri golfklúbbum en einnig á veitingastöðum. „Við erum að innleiða snertilausar pantanir meðal annars á útisvæðum veitingastaða. Viðskiptavinir geta þá flýtt fyrir og pantað gegnum símann, pöntunin kemur upp inni í eldhúsi eða á barnum þar sem hún prentast út úr sérstökum prentara sem við bjóðum upp á. Þjónninn kemur svo með pöntunina á borðið. Þetta er hagræðing fyrir alla og sparar tíma,“ segir Inga Tinna. Marinó Flóvent Dineout.is er í grunninn hugbúnaðarfyrirtæki sem hannað hefur pöntunarkerfi fyrir veitingastaði til að halda utan um borðapantanir, take away og heimsendingar á mat en þjónustar einnig almenning sem getur nálgast yfir 120 veitingastaði gegnum Dineout.is og smáforritið Dineout Iceland. Þar getur almenningur fundið laus borð og bókað ásamt því að panta mat í take-away eða heimsendingu. Í hverri viku fá tveir heppnir viðskiptavinir sem panta mat með Dineout Iceland appinu endurgreitt. Marinó Flóvent „Ásamt því að þjónusta veitingastaði með hugbúnaðarlausnir erum við einnig brú milli þeirra og almennings og þjónustum allan hringinn. Við bjóðum upp á borðabókunarhugbúnað, matarpöntunarhugbúnað og núna kassakerfi á þónokkrum veitingastöðum. Því til viðbótar erum við með snertilausa pöntunarþjónustu sem verður sífellt vinsælli. Við önnumst einnig heimasíðugerð fyrir veitingastaði og sérhæfða hugbúnaðargerð, í raun bjóðum við upp á allar lausnir fyrir þá sem eru með veitingastað í rekstri eða einhverskonar tengingar við veitingastaði. Það að bjóða uppá allar hugbúnaðarlausnir undir sama hattinum er mikil hagræðing fyrir veitingastaði þar sem flæðið verður skilvirkara. Til dæmis ef breyta þarf vörum eða verðum þarf bara að gera það á einum stað og það flæðir þá í gegnum allt kerfið. Einnig þarf starfsfólk bara að læra á eitt kerfi í stað margra eins og áður hefur verið.“ Marinó Flóvent „Við höfum jafnframt fært út kvíarnar og höfum innleitt kerfið á fyrsta veitingastaðnum í Noregi. Fleiri staðir í Noregi munu bætast við á næstunni og þá erum við einnig byrjuð að innleiða kerfið okkar á Spáni. Þetta eru gríðarlega spennandi skref. Í raun má segja að hugbúnaðarþróun hafi tekið stökk í covid þegar snertilausar lausnir og heimsendingar urðu mikilvægar,“ segir Inga Tinna en gríðarlegur fjöldi bókana fer í gegnum Dineout.is „Við fáum rétt tæplega 40.000 heimsóknir í hverjum einasta mánuði. Almenningur er farinn að bóka meira og undirbúa það að fara út að borða þegar fjöldatakmörkunum léttir og það mun bara aukast þegar rýmkar meira og ferðamennirnir koma. Við erum með tengingar inn á flest hótel á landinu svo starfsmenn hótela geta bókað borð fyrir gesti á veitingastöðum sem eru inni hjá okkur á Dineout.is. Það sparar mikla fyrirhöfn að þurfa ekki að hringja á milli staða til að leita að lausu borði heldur er hægt að fara beint inn í sérforrit fyrir hótelstarfsfólk og finna þar laus borð. Eins og áður sagði erum við með yfir 120 veitingastaði á okkar snærum og þeim fjölgar hratt enda er veitingabransinn allur að lifna við og nýir staðir bætast við flóruna,“ segir Inga Tinna. Fyrir nánari upplýsingar er hægt að fara inn á Dineout.is, eða kíkja á instagram og facebook. Hér er hægt að nálgast Dineout Iceland appið fyrir iPhone. Hér er hægt að nálgast Dineout Iceland appið fyrir Android. Matur Veitingastaðir Golf Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að fara inn á Dineout.is, eða kíkja á instagram og facebook. Hér er hægt að nálgast Dineout Iceland appið fyrir iPhone. Hér er hægt að nálgast Dineout Iceland appið fyrir Android.
Matur Veitingastaðir Golf Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira