Leicester kastaði frá sér Meistara­deildar­sæti

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tottenham sótti þrjú stig til Leicester.
Tottenham sótti þrjú stig til Leicester. Shaun Botterill/Getty

Leicester kastaði frá sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð með að tapa 4-2 gegn Tottenham á heimavelli en Chelesa tapaði á sama tíma gegn Aston Villa.

Leicester komst yfir á 18. mínútu er Jamie Vardy skoraði úr vítaspyrnu eftir að Toby Alderweireld braut á framherjanum.

Son Heung-min lagði upp jöfnunarmark Tottenham en það skoraði Harry Kane á 40. mínútu, væntanlega í sínum síðasta leik fyrir Tottenham.

Leicester komst í 2-1 á sjöundu mínútu síðari hálfleiks og aftur var það vítaspyrna. Vardy skoraði þá eftir að Davinson Sanchez gerðist brotlegur.

Öll dramatíkin var ekki úti því Kasper Schmeichel skoraði sjálfsmark á 77. mínútu og Gareth Bale tryggði Tottenham sigurinn skömmu síðar.

Bale var ekki hættur því hann bætti við öðru marki sínu og fjórða mark Tottenham í uppbótartíma og lokatölur 4-2.

Leicester endar því í fimmta sætinu en hefðu þeir nælt í sigur væru þeir á leiðinni í Meistaradeildarsæti. Á meðan Tottenham endar í sjöunda sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira