Dramatískt tap gegn Arsenal í síðasta heima­leik Hodg­sons

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. Facundo Arrizabalaga/Getty

Arsenal vann 3-1 sigur á Crystal Palace í síðasta heimaleik Roy Hodgson sem stjóra í enska boltanum.

Bæði lið klöppuðu Hodgson inn á völlinn í upphafi leiks en hann tilkynnti í vikunni að hann myndi hætta í lok tímabilsins.

Nicolas Pepe kom Arsenal yfir á 35. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Christian Benteke jafnaði metin eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik en hann hefur verið funheitur að undanförnu.

Arsenal komst yfir á fyrstu mínútu uppbótartíma en markið skoraði Gabriel Martinelli eftir að hafa komið af bekknum.

Nicolas Pepe bætti svo við öðru marki skömmu síðar og lokatölur 3-1.

Arsenal er því með 58 stig í níunda sæti deildarinnar og á enn möguleika á Evrópusæti en allt þarf að falla með þeim.

Crystal Palcae er í þrettánda sætinu með 44 stig er ein umferð er eftir af deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira